Reyndi að féfletta eldra fólk með því að saka það um að hafa valdið slysi sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 15. desember 2016 15:19 Fréttastofa hefur heimildir fyrir því að maðurinn hafi nú nýlega haft samband við eldri konu símleiðis og sakað hana um að hafa ekið á barnið sitt á bílaplaninu við Kringluna. vísir/gva
Karlmaður á sextugsaldri var í byrjun mánaðar handtekinn og úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald grunaður um ítrekaðar tilraunir til fjárkúgunar. Maðurinn er sagður hafa reynt að hafa af eldra fólki fé með því að saka það um að hafa valdið slysi. Fréttastofa hefur heimildir fyrir því að maðurinn hafi nú nýlega haft samband við eldri konu símleiðis og sakað hana um að hafa ekið á barnið sitt á bílaplaninu við Kringluna. Barnið hafi fengið gat á höfuðið og að fara hefði þurft með barnið á sjúkrahús. Bauð maðurinn konunni sáttauppgjör og reyndi þannig að féfletta hana. Eftir því sem fréttastofa kemst næst trúði konan manninum í upphafi, enda var hún stödd í Kringlunni umræddan dag. Hún hafði samt sem áður samband við lögregluna, sem tilkynnti henni að þetta væri ekki fyrsta slíka tilfellið. Í tilkynningu frá lögreglu segir að kæra hafi verið lögð fram á hendur manninum vegna málsins. Þá séu til rannsóknar nokkur tilvik af sama toga á hendur manninum, en meintir brotaþolar eru eldra fólk og/eða fólk í viðkvæmri stöðu.RÚV greindi frá því í morgun að ein þeirra sem maðurinn reyndi að svindla á hafi greint frá því á jólafundi hjá Oddfellow-hreyfingunni í gærkvöldi. Málið er að sögn lögreglu nokkuð viðamikið en við húsleit á heimili mannsins var lagt hald á tölvur og síma. Lögregla biður þá sem kunna að hafa upplýsingar um málið að hafa samband símleiðis eða í gegnum netfangið gudmundur.pall@lrh.is.
Mest lesið Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Innlent Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta Innlent Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Innlent Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Innlent Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Innlent Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Erlent Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Innlent Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Innlent Lést í slysi á Hálsasveitarvegi Innlent „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Innlent Fleiri fréttir Sektaður fyrir að aka á göngugötu Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Höfuðvígi vændismansals, mótmælandi sem brotnaði niður og Þingvellir Björgunarsveitir sóttu göngumann við Háafoss Þingið komið í sumarfrí Samþykkja úrræði fyrir fólk sem sæta þarf öryggisráðstöfunum Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Allt eftirlit matvæla undir einni stofnun Boltinn sé hjá fjarskiptafélögunum Fresta opnun Sundhallar Reykjavíkur Áhöfnin hlúði að Hólmsteini á siglingunni til Hvalfjarðar Vetur í íslenskri kvikmyndagerð Handtökur í vændisrannsókn lögreglu Hjartaljósin ekki sloppin „Virðist vera einhverskonar gamaldags sjómennskuhefndaraðgerð“ Stór mál á dagskrá síðasta þingfundar fyrir þingfrestun Lést í slysi á Hálsasveitarvegi Hvalavinurinn í tunnunni og Kaleo undirbýr Þingvallakonsert Inga ræddi við fulltrúa Tiktok um að hækka aldursmörk Halda í opinbera heimsókn til Færeyja Dómur burðardýrs mildaður Starmer ætlar ekki að láta í minni pokann fyrir Burnham strax Einn vildi sýkna þegar dómur fyrir sérlega sársaukafulla nauðgun var staðfestur Sjá meira