Mun verra fyrir umhverfið að fá sér plastjólatré Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar 15. desember 2016 19:30
Að fá sér plastjólatré fyrir jólin hefur margfalt verri áhrif á umhverfið en að fá sér lifandi tré, jafnvel þó að þau séu notuð mörg ár í röð. Fyrir hvert íslenskt tré sem höggvið er eru fimmtíu ný gróðursett. Samkvæmt upplýsingum frá Skógaræktarfélagi Íslands hafa gervijólatré þrefalt meiri áhrif á loftslagsbreytingar en lifandi tré. „Ef þú kaupir þér plasttré þá þarf að framleiða það, venjulega í Kína, og það er gert úr jarðolíu og síðan þarf kolaorkuver til að búa það til. Síðan eru þau flutt með skipum til landsins og svo þarf að farga þeim. Þetta skilur eftir sig um það bil fimmtíu kíló af kolefnisútblæstri út í loftið,“ segir Helgi Gíslason framkvæmdastjóri Skógræktar Reykjavíkur. Lifandi jólatré sem seld eru hér á landi eru aftur á móti mörg innflutt en flutningur yfir hafið hefur neikvæð umhverfisáhrif. Umhverfisvænast er að kaupa íslensk tré, sem vaxið hafa nálægt heimilinu. Fyrir hvert tré sem Skógræktarfélagið selur gróðursetja félagsmenn fimmtíu tré á móti. Kristín Erla Gísladóttir, framkvæmdastjóri Garðheima, segir að undanfarin ár hafi margir haft umhverfið í huga við kaup á jólatrjám. „Já við sjáum að það hefur verið stór breyting á undanfarin tvö til þrjú ár,“ segir hún. Því standi nú ýmsir umhverfisvænir kostir til boða. Fólk geti til dæmis keypt tré með rótum sem má gróðursetja úti í garði eftir hátíðarnar. „Það getur lifað árum saman. Og svo getur fólk þess vegna tekið tréð aftur inn fyrir næstu jól.“
Mest lesið „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Innlent Koma af fjöllum varðandi áform borgarinnar Innlent Lögreglan leitar tveggja drengja frá Borgarnesi Innlent Spreyttu þig á PISA-spurningunum Innlent Uppsagnir hjá dómsmálaráðuneytinu Innlent Salurinn veltist um af hlátri þegar vitni hringdi inn frá Albaníu Innlent Hjólahvíslarinn og lögreglan björguðu Latabæ Innlent Drengirnir hafi látið vita af sér Innlent Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Erlent Orð yfirmanns síns „ósanngjörn“ og „ófagleg“ Innlent Fleiri fréttir Þriggja ára fangelsi fyrir að frelsissvipta æskuvin sinn Brim sýknað af kröfum foreldra sjómannsins Sundabraut verði eitt það fyrsta á dagskrá Uppsagnir hjá dómsmálaráðuneytinu Gefa ríkisstjórninni rauða spjaldið Ríkið lagði eldri borgarana Laun Wolt sendla undir þúsund krónum á klukkutímann „Get ég komið fjórtán lítrum fyrir í tíu lítrum af flöskum?“ Koma af fjöllum varðandi áform borgarinnar Rúmlega þúsund farþegar fært til flug og enginn sáttafundur í kjaradeilu Drengirnir hafi látið vita af sér Sækjandi fékk sínu framgengt: „Fabríkera einhver gögn og leggja fram“ Afturkalla lóðaúthlutun til tveggja trúfélaga Spreyttu þig á PISA-spurningunum „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Hlaut Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti Geti fundið Tækniskólanum góðan stað á Akureyri Hjólahvíslarinn og lögreglan björguðu Latabæ Með lambúshettu að prófa sírenur og gjallarhorn Lögreglan leitar tveggja drengja frá Borgarnesi Alelda bíll í Kópavogi Grunaður barnaníðingur gengur laus Varanlega sviptur vörslu á hundum sem hann skildi eftir í sóðaskap Orð yfirmanns síns „ósanngjörn“ og „ófagleg“ Dularfullt drónaflug í Kópavogi vekur íbúum ugg Gæti þaggað niður í röddum landsbyggðarinnar Báðir aðstoðarmennirnir horfnir á stuttum tíma Tvö mál í dag þar sem ógnað var með hnífi Salurinn veltist um af hlátri þegar vitni hringdi inn frá Albaníu Sunnlendingar buðu best í breikkun á Kjalarnesi Sjá meira