Ungt fólk á Íslandi kaupir sér hjólhýsi til að búa í allan ársins hring Anton Egilsson skrifar 15. desember 2016 19:56
Það er ekki nýtilkomið vandamál að ungt fólk hafi átt í miklum erfiðleikum með að kaupa sína fyrstu íbúð. Húsnæðisverð er hátt og þá er lítið framboð af minni íbúðum en slíkar íbúðir sækir ungt fólk fremur í. Er það farið að færast enn meira í aukana að þessi hópur nýti sér þann kost að kaupa sér hjólhýsi eða stöðuhýsi til að búa í, jafnvel fólk með ung börn. Þetta kom fram í þættinum í Reykjavík síðdegis þar sem rætt var við Arnar Barðdal, framkvæmdastjóra Víkurverks. „Við höfum aðeins fundið fyrir þessu. Þetta byrjaði síðasta sumar en þá byrjaði ungt fólk að koma til okkar og spyrja um þessa möguleika. Þá voru þau að leita sér að hjólhýsi til að búa í allan ársins hring,“ sagði Arnar. Hann segir það jafnvel tíðkast að fólk með ung börn nýti sér þennan valkost. „Ég man sérstaklega eftir ungum hjónum með lítið barn sem keyptu sér hjólhýsi í sumar og þau sögðust ætla að búa í því í tvö ár.“Fólk sem hefur ekki efni á húsnæðiÁstæða þess að fólk kýs þennan valkost segir Arnar að sé fyrst og fremst sú að þau hafi hreinlega ekki efni á að kaupa sér húsnæði. „Þetta er ungt fólk sem sér fyrir sér að það geti ekki keypt sér íbúð og er að leita leiða til að búa saman. Það ákveður þá að reyna þetta.“ Arnar segir þó að skortur sé á svæðum til að koma slíkum hjólhýsum á og að úr því verði að bæta. „Það er það erfiðasta við þetta, það er ekki mikið af svæðum til þess. Við höfum nú aðeins farið fram á það við sveitarfélögin og erum að biðja þá um leysa það að koma með aðstöðu til að setja hjólhýsi eða stöðuhýsi á. Í rauninni alls staðar í Evrópu er þetta upp komið.“
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Erlent Svavar Sigmundsson er látinn Innlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent Fleiri fréttir Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir höfðu legið ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri „Nú hef ég auðvitað ekkert á móti fólki frá Nígeríu“ Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Rannsóknin á lokametrunum Fjórir landsréttardómarar vilja taka skrefið í Hæstarétt Forsetar Íslands og Slóveníu ræða leiðtogahlutverk í breyttum heimi Segir forsætisráðuneytið misnotað í þágu sveitarstjórnarkosninga Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Sjá meira