Um háskólamenntun í tónlist – gæði náms, uppbygging og framþróun Þóra Einarsdóttir skrifar 2. ágúst 2016 07:00 Ég hef í nokkrum greinum hér í Fréttablaðinu vakið athygli á uppbyggingu og framþróun á sviði tónlistarmenntunar á Íslandi með áherslu á það starf sem á sér stað innan Listaháskóla Íslands á þeim sviðum þar sem ég hef kynnst starfinu af eigin raun. Innan tónlistardeildar LHÍ fer einnig fram mikið starf sem ég hef ekki komið inn á í skrifum mínum og vert væri að fjalla um. Það er mikilvægt fyrir tónlistarlífið í landinu að vel sé búið að háskólamenntun á sviði tónlistar. Ennfremur er nauðsynlegt að tónlistarskólar sem sinna menntun á framhaldsstigi fái greitt úr þeim málum er snúa að fjármögnun námsins svo að tryggja megi fjölbreytt námsframboð og jafnrétti til náms. LHÍ er ekki hafinn yfir gagnrýni, langt í frá. Skólinn er ungur og námið í stöðugri þróun. Á þeim skamma tíma sem skólinn hefur starfað hefur hann orðið einn helsti styrkleiki tónlistarlífsins á Íslandi. Fjölmargir nemendur skólans hafa fundið sér farveg á sviði tónlistar og þroskast og dafnað sem sjálfstæðir listamenn. Þrátt fyrir aðstöðuleysi og fjárskort hef ég orðið vör við mikinn metnað stjórnenda um að námið þar sé framsækið og kröftugt, miði að þörfum nemenda og standist alþjóðlegar kröfur um gæði náms. Listaháskólinn sinnir kerfisbundnu eftirliti með gæðum kennslu og rannsókna á grundvelli innra mats og eftir forskrift gæðaráðs háskólanna. Óháð úttekt var gerð á tónlistardeild LHÍ árið 2012 á vegum AEC (evrópskra samtaka tónlistarháskóla).Undraverður árangur Í niðurstöðum úttektarinnar kemur fram að nefndin telur að tónlistardeild LHÍ hafi náð undraverðum árangri á skömmum tíma, gæði kennslunnar séu mikil og námið framsækið. Námið miði að þörfum nemenda og sýni sú staðreynd hversu stór prósenta þeirra fá atvinnu að námi loknu, að námið búi nemendur vel undir atvinnumennsku í tónlist. Í skýrslunni er vitaskuld komið inn á aðstöðuleysi og fjárskort en Tónlistardeild LHÍ er jafnframt hrósað fyrir útsjónarsemi og þegar kemur að nýtingu á rými og fjármunum. Þar koma einnig fram ábendingar um það hvernig þróa megi starf tónlistardeildar LHÍ. Síðan skýrslan kom út hefur verið unnið markvisst í að fylgja þeim ábendingum eftir. Sem dæmi um uppbyggingu náms innan LHÍ hef ég í greinarskrifum undanfarið fjallað um: námsþróun innan LHÍ í alþjóðlegri samvinnu, framsækið nám í söng og menntun tónlistarkennara. Fjölbreytt uppbygging á sér stað innan tónlistardeildar, og margt sem ég hef ekki komið inn á í skrifum mínum s.s. öflugt nám í tónsmíðum og eflingu rannsókna. Nauðsynlegt er að bæta aðstöðu LHÍ svo áfram verði hægt að hlúa að þeim vaxandi fjölda nemenda sem þangað sækir, sinna rannsóknum og þróa framsækið og kröftugt nám. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Halldór 29.08.26 Halldór Skoðun Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar