Fébótakröfu fyrrverandi trymbils Sólstafa vísað frá dómi Jóhann Óli Eiðsson skrifar 8. júní 2016 22:56 Sólstafir á meðan Guðmundur Óli var enn meðlimur. mynd/stebba ósk
Héraðsdómur Reykjavíkur vísaði í dag lögbannskröfu og 20 milljón króna skaðabótakröfu Svalbard Music Group, fyrirtækis sem stofnað var um rekstur hljómsveitarinnar Sólstafa, á hendur Aðalbirni Tryggvasyni, söngvara og gítarleikara sveitarinnar, frá dómi. Hljómsveitin Sólstafir var stofnuð árið 1995 og hefur notið nokkurra vinsælda víða um heim. Áðurnefndur Aðalbjörn Tryggvason er einn stofnmeðlima sveitarinnar en sömu sögu er að segja af Guðmundi Óla Pálmasyni, trommara, en honum var vikið úr hljómsveitinni í upphafi árs 2015. Guðmundur greindi frá sinni hlið í tengslum við brottreksturinn í yfirlýsingu sem birt var síðasta sumar. Eftirstandandi meðlimir sveitarinnar báðu um tilfinningalegt svigrúm vegna málsins. Það var síðan mánuði síðar sem Guðmundur Óli tilkynnti að hann hyggðist höfða dómsmál vegna fjármuna sem hann telur sig hafa orðið af. Hægt er að lesa umfjallanir Vísis um efnið með að smella á tenglana hér á undan.Taldi sig hafa orðið af tuttugu milljónum Svalbard Music Group var stofnað í ársbyrjun 2011 var í eigu Guðmundar og Aðalbjörns til helminga. Þeir hafi setið tveir í stjórn þess og Guðmundur verið stjórnarformaður, og haft oddaatkvæði í sínum höndum, en Aðalbjörn var meðstjórnandi og framkvæmdastjóri með prókúru. Í málflutningi Guðmundar fyrir dómi kom fram að árangur Sólstafa á erlendri grundu hafi ekki síst verið honum að þakka. Auk framlags hans til tónlistarsköpunar hafi hann séð um samfélagsmiðla og hannað, ýmist einn eða í samstarfi við aðra, mest allan varning og kynningarefni sveitarinnar. Taldi trommarinn að með því að halda áfram sölu á varningi Sólstafa bryti hans gamli vinur, Aðalbjörn, á rétti sínum. Fór hann því fram á að Aðalbjörn myndi láta af því auk þess að hann krafðist tuttugu milljóna vegna þess tjóns sem hann taldi sig hafa orðið fyrir.Ólögmætur stjórnarfundur Líkt og áður segir var kröfu félagsins vísað frá dómi. Svalbard Music Group hélt stjórnarfund 11. desember síðastliðinn sem Guðmundur Óli mætti einn á þrátt fyrir að boðað hafi verið til hans með löglegum hætti. Á fundinum var sú ákvörðun tekin, með oddaatkvæðinu einu, að slíta ráðningu Aðalbjörns sem framkvæmdastjóra og afturkalla prókúrumboð hans. Á hluthafafundi síðar í mánuðinum, sem aðeins lögmaður Guðmundar Óla sótti, var síðan tekin ákvörðun um að hafa uppi fébótakröfu á hendur Aðalbirni. Í niðurstöðu héraðsdómara segir að samkvæmt lögum um einkahlutafélög þurfu meirihluti stjórnarmanna að sækja stjórnarfundi til að þeir séu lögmætir. Að auki var fundið að því hvernig staðið var að boðun hluthafafundarins. Það var niðurstaða dómara að Guðmundur Óli gæti ekki farið með fyrirsvar fyrir félagið þar sem ekki fundirnir voru eigi lögmætir. Úrskurðinn í heild sinni má lesa hér.
Tengdar fréttir Ætlar í mál við fyrrum félaga í Sólstöfum Þeir í Sólstöfum eru ekki búnir að bíta úr nálinni með að hafa rekið Gumma trymbil sem telur sig verða af verulegum fjármunum vegna brottrekstursins. 6. júlí 2015 10:32 Deila um lógó sem þeir virðast hafa nappað sjálfir Enn flækjast flókin mál hljómsveitarinnar Sólstafa. 21. janúar 2016 17:01 Meðlimir Sólstafa biðja um tilfinningalegt svigrúm Þungarokkshljómsveitin Sólstafir sendir frá sér yfirlýsingu sem snýr að brottrekstri fyrrum trymbils hljómsveitarinnar. 5. júní 2015 13:22 Trommari Sólstafa greinir frá brotthvarfi sínu í tilfinningaþrunginni yfirlýsingu Var rekinn úr sveitinni í janúar. Bókaði tíma með fjölskylduráðgjafa til að reyna að ná sáttum. 3. júní 2015 13:28 Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Innlent Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Innlent Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Erlent Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Innlent Fleiri fréttir Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Ekki síður í vandræðum með bóklega kennslu Áhrif smyglmáls og hugsanleg brot stjórnvalda á alþjóðlegum skuldbindingum Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnagjöf Sjá meira
Ætlar í mál við fyrrum félaga í Sólstöfum Þeir í Sólstöfum eru ekki búnir að bíta úr nálinni með að hafa rekið Gumma trymbil sem telur sig verða af verulegum fjármunum vegna brottrekstursins. 6. júlí 2015 10:32
Deila um lógó sem þeir virðast hafa nappað sjálfir Enn flækjast flókin mál hljómsveitarinnar Sólstafa. 21. janúar 2016 17:01
Meðlimir Sólstafa biðja um tilfinningalegt svigrúm Þungarokkshljómsveitin Sólstafir sendir frá sér yfirlýsingu sem snýr að brottrekstri fyrrum trymbils hljómsveitarinnar. 5. júní 2015 13:22
Trommari Sólstafa greinir frá brotthvarfi sínu í tilfinningaþrunginni yfirlýsingu Var rekinn úr sveitinni í janúar. Bókaði tíma með fjölskylduráðgjafa til að reyna að ná sáttum. 3. júní 2015 13:28