Trommari Sólstafa greinir frá brotthvarfi sínu í tilfinningaþrunginni yfirlýsingu Birgir Olgeirsson skrifar 3. júní 2015 13:28 Hljómsveitin Sólstafir. Guðmundur trommari er annar frá vinstri en Aðalbjörn Tryggvason er lengst til hægri á myndinni. Mynd/Bjorn Arnason „
Það erfiðasta við þessa yfirlýsingu er að færa alla athyglina á sjálfan mig,“ segir trommuleikarinn Guðmundur Óli Pálmason í yfirlýsingu þar sem hann rekur ástæður þess hvers vegna hann er ekki lengur trommuleikari hljómsveitarinnar Sólstafa. Guðmundur segist hafa farið yfir tölvupóstinn sinn að morgni 20. janúar síðastliðinn þar sem hann bjóst við að finna upplýsingar um flug í tengslum við fyrirhugaða tónleikaferð Sólstafa sem átti að hefjast degi síðar. Í stað þess segist hann hafa fundið tölvupóst frá félaga sínum í sveitinni Aðalbirni Tryggvasyni sem var undirritaður af Aðalbirni og félögum Guðmundar í Sólstöfum. Greindu þeir honum frá því að þeir hefðu ákveðið að reka hann úr bandinu. „Bandið sem ég hef lagt blóð, svita og tár í síðstliðin 20 ár og sögðu ástæðun vera samskipta erfiðleika okkar á milli,“ segir Guðmundur í yfirlýsingunni og segir hann þessa erfiðleika hafa verið skrifaða á sig sem honum þykir ósanngjarnt.Segist hafa viljað ná sáttum Hann segist hafa hringt í flugfélagið og fengið þær upplýsingar að flugmiði hans hefði verið afturkallaður án hans vitneskju. „Í miklu stressi keypti ég nýja miða og neitaði að staðfesta rétt Aðalbjörns til að reka mig úr sveitinni sem ég stofnaði með honum fyrir 20 árum. Svar Aðalbjörns var að gera mér það alveg skýrt að hann myndi neita því að spila með mér á sviði og það myndi skaða sveitina og gera það ómögulegt að ná nokkrum sáttum í framtíðinni. Ég ákvað að það væri þess virði að reyna að leysa þetta mál með orðum í stað átaka,“ skrifar Guðmundur. Hann segist hafa grátbeðið þá um að gera þetta ekki en segist hafa fengið þau svör að félagar hans í sveitinni yrðu mögulega viljugir að endurskoða þessa ákvörðun eftir mánuð, hálft ár eða ár.„Neyddur til að sitja þögull heima“ „Ég var neyddur til að sitja þögull heima og fylgjast með því hvernig ævistarfið var tekið frá mér og mér gert grein fyrir því að ef ég myndi ræða þetta opinberlega þá yrði enginn möguleiki á því að ég fengi aftur sæti mitt í sveitinni,“ segir Guðmundur. Hann segir að með þessu hafi meðlimir Sólstafa reynt að tryggja að þeir gætu sagt skilið við Guðmund án allra láta. Hann segir litla klausu hafa fylgt Facebook-pósti frá sveitinni þess efnis að Guðmundur yrði ekki á tónleikaferðlaginu vegna persónulegra ástæðna.Bókaði tíma með fjölskylduráðgjafa Guðmundur segist hafa bókað tíma með fjölskylduráðgjafa fyrir alla meðlimi sveitarinnar. Hann segir þá hafa fengið einn og hálfan tíma bókaðan með ráðgjafa til að ræða þessa ákvörðun sem hafði mikil áhrif á líf hans. „Þrátt fyrir þann skamma tíma þá mættu þeir fimmtán mínútum of seint. Veðrið var reyndar slæmt þann dag en þá leggur þú fyrr af stað.“ Þegar þeir voru allir komnir saman var þeim tjáð af ráðgjafanum að ef hitna færi í kolunum myndu þeir taka fimm mínútna pásu til að róa sig og byrja aftur. Hann segir fundinn hafa gengið illa og ekki hafi myndast tilefni til sátta. Hann segist hafa leitað réttar síns vegna málsins og þá vegna notkunar á nafninu Sólstafir og þá segist hann vera komin í mikla skuld vegna lögfræðikostnaðar og fyrirtækisins sem rak hljómsveitina. Hann segist ekki saklaus af hegðun sem gæti stuðlað að samskipta erfiðleikum innan bandsins.Söknuður af kunningjum um allan heim „Við erum allir sekir um slíkt, en ólíkt þeim þá hef ég viðurkennt minn hlut og hef aðeins beðið um að mér sé ekki einum kennt um þetta allt saman.“ Hann segir sinni þátttöku í tónlistarbransanum lokið. Hann muni ekki sakna viðskiptahliðarinnar en á þó eftir að sakna alls fólksins sem hann hefur kynnst á ferðum sínum um heiminn. „Við Aðalbjörn vil ég segja: Mig grunar að þessari yfirlýsingu verði mætt með árásum á mína persónu. Þrátt fyrir að ég hafi viljað koma henni frá mér þá mun ég ekki láta draga mig í opinber átök. Ég hef aldrei viljað ata nafn hljómsveitar minnar í aur,“ segir Guðmundur sem biðlar til Aðalbjörns að nýta þetta tækifæri til að ræða við hann og leita sátta. „Vertu meiri maður. Ég er ekki á nokkurn hátt fullkominn, fjarri því, og ég hef gert mistök, en það hafa allir gert. Á ég það ekki skilið eftir 25 ára vináttu? Á bandið það ekki skilið eftir 20 ár af erfiðisvinnu og fórnum? Ég vona að þú sjáir að refsingin er ekki í samræmi við glæpinn.“ Sjá yfirlýsinguna í heild hér. Aðalbjörn Tryggvason neitaði að tjá sig um málið við Vísi þegar eftir því var leitað.
Mest lesið Aðeins of leiðinlegt til að vera skemmtilegt Gagnrýni Stjörnulífið: Kim Kardashian norðursins fundin Lífið Fótboltastelpan sem endaði í kristnum háskóla í suðurríkjunum Lífið „Ætla að verða ógeðslega fræg og ógeðslega rík” Lífið Stjörnum prýtt afmæli Nínu Lífið 48% aukið áhorf á sjónvarpsstöðvar Sýnar Lífið samstarf Deila fyrstu myndunum af hvort öðru Lífið Jólagjafahugmyndir sem hitta í mark Lífið samstarf „Mig hefði aldrei grunað að þetta ætti eftir að koma fyrir mig“ Lífið Fékk veipeitrun Lífið Fleiri fréttir Stjörnum prýtt afmæli Nínu „Ætla að verða ógeðslega fræg og ógeðslega rík” Stjörnulífið: Kim Kardashian norðursins fundin Fótboltastelpan sem endaði í kristnum háskóla í suðurríkjunum Deila fyrstu myndunum af hvort öðru „Mig hefði aldrei grunað að þetta ætti eftir að koma fyrir mig“ Skelfing greip um sig þegar björgunarbátnum hvolfdi Krakkatían: Borgari, bækur og aðfangadagur jóla Tommi Steindórs og Hrafnhildur trúlofuð Slagsmálin tengd hrósi, ekki framhjáhaldi Fékk veipeitrun Fréttatía vikunnar: Ofbeldi unglinga, Spotify wrapped og Kærleikskúlan Björk beinir skilaboðum til stjórnar RÚV Plötuðu Sigríði Andersen til að stíga í alvöru hundaskít Jólalegasti garðurinn í hverfinu og töff jólaskreytingar inni og úti „RÚV plís ekki vera gungur og aumingjar“ Kveður fasteignir fyrir kroppa Róandi skýjadansari er litur ársins 2026 Mortal Kombat-stjarna látin Hafði leitað árangurslaust að blóðföður sínum í áratugi Chanel og Snorri eiga von á syni Forritararnir borðuðu sveppina til að ná að vera aðeins lengur en hinir Stjórnmálamenn stigu trylltan dans í kjaftfullum Austurbæ „Ég er pínu meyr í dag“ Örlög Ísrael í Eurovision ráðast á aðalfundi sem hefst í dag Erum við of heimsk til að nota gervigreind? Þessi eru tilnefnd til íslensku bókmenntaverðlaunanna Fannar leitaði lengi að transbrauði „Mamma, ég gat þetta“ Opnar sig um kaupfíkn sem kviknaði þegar hún var sjö ára Sjá meira