Öll brosum við á sama tungumáli segir formaður VR Benedikt Bóas skrifar 21. desember 2016 07:00 Ólafía Rafnsdóttir formaður VR minnir fólk á að þrátt fyrir stressið kostar kurteisi ekki neitt. vísir/anton „
Það þarf að virða störf verslunarfólks. Hrós og kurteisi kostar ekkert og öll brosum við á sama tungumáli,“ segir Ólafía Rafnsdóttir, formaður VR, en nú fer í hönd sá tími sem álag er hvað mest á fólk sem vinnur verslunarstörf. Á hverjum sólarhring á starfsmaður rétt á ellefu klukkustunda hvíld. Hjá verslunarmönnum getur reynt á þessa reglu þegar atgangurinn er sem mestur fyrir jólin.Ólafía B. RafnsdóttirÓheimilt er samkvæmt lögum að skipuleggja vinnu á þann hátt að vinnudagurinn sé lengri en þrettán klukkustundir. Ef ellefu klukkustunda hvíld næst ekki skal vinnuveitandi veita hana síðar. Þannig safnast svokallaður frítökuréttur upp. Fyrir hverja klukkustund sem ellefu tíma hvíldin skerðist um öðlast starfsmaður 1,5 klukkustund í dagvinnu í frítökurétt. Ólafía segir að VR sé vel á verði fyrir sitt fólk en kvörtunum til félagsins um vinnutíma hefur farið fækkandi á undanförnum árum. „Það heyrist yfirleitt í okkar fólki í janúar þegar það er búið að fara yfir launaseðilinn sinn,“ segir Ólafía sem kveður breytinguna undanfarin ár vera þá að miklu fleiri séu farnir að sinna afgreiðslustörfum en áður. „Í gamla daga var stundum bara einn að vinna og kannski myrkranna á milli. Við höfum síðustu árin fengið minna af þessum kvörtunum en minnum að sjálfsögðu okkar félagsmenn á það að virða hvíldartímann,“ segir Ólafía.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Fleiri fréttir „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Sjá meira