Vanir slökkvistarfi á athafnasvæðinu og gekk greiðlega að slökkva eldinn Samúel Karl Ólason skrifar 30. nóvember 2016 00:00 Slökkviliðsmenn bleyta vel í safnhaugnum. Vísir/Jóhann
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sendi allt tiltækt lið í Klettagarða í kvöld eftir að tilkynning barst um eld í safnhaugi á iðnaðarsvæði Hringrásar. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu reyndist eldurinn ekki mikill og gekk greiðlega að ná tökum á honum. Safnhauginum hefur verið skipt niður og því var eldurinn minni en annars. Ástæða þess að slökkvistarf gekk vonum framar er að slökkviliðsmönnum tókst að kæla hauginn vel. Þar sem oft hefur kviknað í á iðnaðarsvæðinu vissu slökkviliðsmenn hvernig og hvaðan væri best að ráðast á eldinn. Mikill reykur var yfir svæðinu og fylgdi honum mikil lykt sem barst í Laugarneshverfið. Um var að ræða blandaðan safnhaug, en Hringrás tekur á móti og endurvinnur brotajárn, hjólbarða og ýmis spilliefni. Starfsfólk frá Hringrás vann í því að moka hauginn til svo slökkviliðið gæti slökkt í jafn óðum. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem eldur kemur upp á athafnasvæði Hringrásar við Sundahöfn. Kviknaði í safnhaugum þar árið 2004, svo rýma þurfti fjölda húsa. Árið 2011 kviknaði svo aftur í safnhaugum á athafnasvæðinu. Ekki er talin þörf á því að vera með vakt á svæðinu í nótt.Engin hætta er talin vera á ferðum.Vísir/ErnirBúið er að skipta upp safnhauginum.Vísir/ERNIRMIkinn reyk bar yfir hverfið í fyrstu.Vísir/ErlaVísir/ERNIR
Mest lesið Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Erlent Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Lést er hún fagnaði sigri Frakka Erlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent Fleiri fréttir Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Sjá meira