Ætlaði að skoða gögn manns með svipaða kennitölu Jóhann Óli Eiðsson skrifar 18. janúar 2016 15:15 Húsnæði umboðsmanns skuldara. vísir/vilhelm
Íslenska ríkið hefur verið dæmt til að greiða konu á sextugsaldri 6,5 milljónir króna í skaðabætur eftir að henni var vikið úr starfi hjá umboðsmanni skuldara með ólögmætum hætti. Konunni var sagt upp fyrirvaralaust eftir að upp komst að hún hafði skoðað trúnaðargögn sem tengdust málefnum fyrrverandi eiginmanns hennar. Konan, sem hafði lokið grunnnámi í lögfræði, hóf störf hjá umboðsmanni skuldara árið 2010 og fékk fastráðningu í janúar 2011. Frá nóvember þess árs til loka september 2013 starfaði hún sem ráðgjafi hjá stofnuninni en þá tók hún við sem deildarstjóri ráðgjafaþjónustu. Umboðsmaður skuldara hafði til meðferðar þrjú mál sem vörðuðu fyrrverandi eiginmann konunnar, tvö ráðgjafarmál og eitt mál sem varðaði greiðsluaðlögun hans. 8. mars 2014 sendi maðurinn bréf á stofnunina þar sem fram kom að fyrrverandi eiginkona hans hefði tekið fjármuni út af bankareikningi sem innihélt húsaleigutekjur af sameiginlegri eign þeirra. Þremur dögum áður hafði konan skoðað upplýsingar um eignir, skuldir, tekjur og framfærslu hans. Í kjölfarið var konan boðuð á fund og hún upplýst um að hún væri grunuð um að hafa brotið af sér í starfi en henni ekki tjáð hvers eðlis brotið væri. Var hún í send í ótímabundið leyfi vegna þessa. Síðar kom í ljós að hún hafði skoðað gögn manns síns í tvígang áður, í desember 2012 og júlí 2013.Ósannað að eigin hagsmunir hafi verið markmiðið Það var mat stjórnenda stofnunarinnar að með aðkomu sinni að málum eiginmanns síns fyrrverandi hefði hún brotið gegn hæfisreglum stjórnsýslulaga og siðareglum stofnunarinnar. Þá hafi hún einnig gerst brotleg gegn ákvæðum laga um persónuvernd og 4. grein laga nr. 100/2010 um umboðsmann skuldara þar sem segir að starfsmönnum sé óheimilt að greina frá hlutum sem þeir verða áskynja í starfi sínu. Konan fékk tvær vikur til að svara þeim ásökunum sem á hana voru bornar. Bar hún því þá meðal annars við að „hún hafi opnað gögn eiginmanns síns óviljandi þegar hún ætlaði að opna mál annars manns sem hafði svipaða kennitölu.“ Hélt hún því til streitu að uppsögn hennar hefði verið ólögmæt en ekki var fallist á það af fyrrverandi vinnuveitanda hennar. Í niðurstöðu dómsins segir að sannað sé að konan hafi skoðað gögnin en ósannað að hún hafi gert það með vilja í öllum tilvikum. Þá þótti einnig ósannað að hún hafi gert það með það að leiðarljósi að bæta eigin hag eða skerða hag fyrrverandi eiginmanns síns eða kröfuhafa. Í lögum nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins segir að heimilt sé að víkja starfsmanni fyrirvaralaust úr starfi hafi hann verið sviptur með fullnaðardómi réttindum til að gegna því starfi eða hafi hann játað að hafa gerst sekur um refsiverða háttsemi. Þau skilyrði voru ekki uppfyllt í máli þessu. Fyrir dómi bar lögmaður ríkisins því við að samkvæmt reglum almenns vinnuréttar væri heimilt að rifta ráðningarsamningi hafi starfsmaður vanefnt skyldur sínar verulega. Sama regla ætti að gilda um mál þetta. Þessu hafnaði dómari málsins og benti á að um málefni ríkisstarfsmanna giltu sérstök lög. Ráðningarsamningi konunnar hefði verið rift bótalaust og án launa í uppsagnarfresti. Með því hefði ríkið brotið gegn meðalhófsreglu stjórnsýslulaga og skýrum fyrirmælum starfsmannalaga. Konunni voru því dæmdar bætur að álitum, alls 6,5 milljónir króna. Upphafleg bótakrafa hljóðaði upp á rúmar tuttugu milljónir króna. Að auki var ríkinu gert að greiða 1,5 milljónir króna í málskostnað.
Mest lesið Mótmælendur lokuðu veginum að Bláa lóninu Innlent Donald Trump greindur með langvinna bláæðabólgu Erlent Atvinnurekendur í Grindavík argir: „Míga inn um bréfalúguna, dingla og spyrja hversu langt þú dreifst“ Innlent Tekur U-beygju og kallar stuðningsmenn sína aumingja Erlent Grunur um að maður hafi kveikt í húsi í Reykjanesbæ Innlent Flugvél snúið við vegna eldgossins: Var í fjörutíu klukkustundir á leið til Íslands Innlent Átta börn fædd úr erfðaefni þriggja einstaklinga til að fyrirbyggja sjúkdóma Erlent Ætlar ekki að þegja til að láta fordómafullu fólki líða betur Innlent Von der Leyen dásamaði útsýnið á Reykjavíkurflugvelli Innlent Félag eldri borgara vildi bygginguna nær lóðarmörkunum Innlent Fleiri fréttir „Það er bara ömurlegt að fá þessi tíðindi núna“ Skipulögð skref í átt að aðild án umboðs þjóðarinnar Séríslenskt gervi-Oxy í mikilli dreifingu Grindavík opin fyrir almenning á nýjan leik Ferðamenn streyma í Hrísey alla daga vikunnar Tilkynnt um þjófnað í fjórum verslunum Boða tvíhliða varnarsamning við Evrópusambandið Mótmæli, sviknir strandveiðimenn og hættulegar falsaðar töflur Von der Leyen segir aðildarumsókn Íslands enn gilda Þriggja bíla árekstur á Hringbraut Strandveiðum er lokið í sumar Í beinni: Blaðamannafundur Kristrúnar og von der Leyen Atvinnurekendur í Grindavík argir: „Míga inn um bréfalúguna, dingla og spyrja hversu langt þú dreifst“ Gosið lifir enn og mengun norður í landi Flugvél snúið við vegna eldgossins: Var í fjörutíu klukkustundir á leið til Íslands Grindvíkingar setja þrýsting á lögreglustjóra Háskólinn fær 200 milljónir vegna vatnslekans Telur stuðning við ESB-viðræður til staðar Telur enga leið til þess að lengja strandveiðitímabilið Flutti tæp þrjú kíló af kókaíni til landsins og fær tvö ár Ætlar ekki að þegja til að láta fordómafullu fólki líða betur Strandveiðar færast frá Viðreisn til Flokks fólksins Myndir: Flugu til Þórsmerkur og Grindavíkur Mótmælendur lokuðu veginum að Bláa lóninu „Annars lítur þetta ekki mjög vel út fyrir þær“ „Sýnið nú kjark og dug og gerið þetta almennilega“ Grunur um að maður hafi kveikt í húsi í Reykjanesbæ Staðan á gosinu og óánægja með lokanir í Grindavík Segir ferðaþjónustunni mismunað og efnir til mótmæla Félag eldri borgara vildi bygginguna nær lóðarmörkunum Sjá meira
Atvinnurekendur í Grindavík argir: „Míga inn um bréfalúguna, dingla og spyrja hversu langt þú dreifst“ Innlent
Atvinnurekendur í Grindavík argir: „Míga inn um bréfalúguna, dingla og spyrja hversu langt þú dreifst“
Atvinnurekendur í Grindavík argir: „Míga inn um bréfalúguna, dingla og spyrja hversu langt þú dreifst“ Innlent