Elliðaár skili hærri tekjum Garðar Örn Úlfarsson skrifar 26. nóvember 2016 07:00 Elliðaárnar eru gjöfular á lax við liðsmenn Stangaveiðfélags Reykjavíkur. vísir/vilhelm
Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur samþykkti nýlega að verða við ósk Stangaveiðifélags Reykjavíkur og framlengja samning um veiði í Elliðaánum út árið 2018. Samningur um Elliðaárnar átti að renna út í lok þessa árs að því er fram kemur í greinargerð Bjarna Bjarnasonar forstjóra sem lögð var fyrir stjórn OR. Reykjavíkurborg er eigandi árinnar en OR umsjónaraðili út árið 2018 samkvæmt samningi frá 2001. Framlenging samnings OR við Stangaveiðifélagið var reyndar tekin fyrir í stjórn fyrirtækisins í fyrra en ekki afgreidd vegna óvissu um fyrirætlan Reykjavíkurborgar varðandi svæðið.Bjarni Bjarnason, forstjóri OR.„Stjórn taldi þá réttast að ákvörðun um framlengingu samnings biði niðurstaðna starfshóps um framtíð Elliðaárdals. Ekki liggur [fyrir] hvað Reykjavíkurborg hyggst með framtíð Elliðaárdals eftir því sem næst verður komist, en á þessum tímapunkti er mikilvægt að samningur við leiguaðila ánna liggi fyrir enda komið að því að markaðssetja og selja veiðileyfi vegna ársins 2017,“ segir í greinargerðinni. Þá kemur fram að OR greiði 16,5 prósent af brúttótekjum seldra veiðileyfa til Veiðifélags Elliðavatns vegna afnota af uppeldissvæðum laxaseiða í samræmi við samkomulag á milli Reykjavíkurborgar og Veiðifélags Elliðavatns frá 1975. Stangaveiðifélagið sjái um þessar greiðslur svo framlenging samkomulagsins þýði ekki aukinn kostnað fyrir Orkuveituna. Þess má geta að starfshópurinn sem forstjóri OR nefnir skilaði af sér skýrslu í apríl á þessu ári. Hópurinn segir æskilegt að auka tekjur og nýta þær í innviðauppbyggingu og umhirðu í Elliðaárdal. „Skoða þarf verðlagningu, möguleikann á að bjóða upp á veiðileyfi í mismunandi verðflokkum. Ekki megi þó hækka verð of mikið, veiði í Elliðaánum á að vera öllum möguleg sem það vilja að mati starfshópsins og er mælt með að Stangaveiðifélagið skoði leiðir um hvernig megi rýmka fyrir umsækjendum um veiðileyfi þannig að fleiri eigi aðgang að því,“ segir starfshópurinn og leggur til að rætt verði við Stangaveiðifélagið um þessi mál. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Segir í tísku að setja „alþjóðasamfélagið“ ofar eigin þjóð Erlent Fleiri fréttir Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sjá meira