Forsetafrúin á Grænlandi Kristján Már Unnarsson skrifar 9. september 2016 12:30 Forsetafrúin Eliza Reid með taflborð. Grænlensk skólabörn fyrir aftan. Árni Gunnarsson, framkvæmdastjóri Flugfélags Íslands, til vinstri, og Jens Borch Scharnberg, skólastjóri í Kangerlussuaq, til hægri. Stöð 2/Egill Aðalsteinsson.
Forsetafrúin Eliza Reid fór í sína fyrstu utanlandsferð í gær sem forsetafrú Íslands þegar hún fagnaði nýrri flugleið Flugfélags Íslands til Grænlands og afhenti börnum í Kangerlussuaq taflsett frá Hróknum. Meðan Guðni Th. Jóhannesson er í Brasilíu, þar sem hann heiðrar ólympíumót fatlaðra í sinni fyrstu utanlandsferð sem forseti, skrapp forsetafrúin Eliza Reid til Grænlands í gær með einni af nýju Bombardier-vélum Flugfélags Íslands. Tilgangurinn var að fagna nýrri flugleið til Kangerlussuaq, sem er fimmti áfangastaður Flugfélagsins á Grænlandi. Flugvöllurinn var áður þekktur sem Syðri-Straumfjörður. Þar flutti forsetafrúin ávarp þar sem hún fagnaði því sérstaklega að Grænland skyldi verða fyrsta landið sem hún heimsótti sem forsetafrú. Ekki aðeins væri Grænland næsta nágrannaland Íslands heldur væri Kanada, þar sem hún ólst upp, næsta nágrannaland Grænlands á hina hliðina. Forsetafrúin afhenti grænlenskum börnum taflsett að gjöf frá Flugfélaginu og Skákfélaginu Hróknum en fór síðan í skoðunarferð um stórbrotna náttúru Grænlands og sá þar meðal annars sauðnaut. Myndir frá heimsókninni verða sýndar í fréttum Stöðvar 2 í kvöld.Sauðnaut skammt utan við Kangerlussuaq í gær.Stöð 2/Egill Aðalsteinsson.
Mest lesið Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Innlent Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Innlent Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Segir andstæðinga viðræðna leita í handbók Farage og Reform Innlent Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Innlent Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Innlent Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Innlent Fleiri fréttir Vegavinna á Reykjanesbraut vestan Straumsvíkur Segir andstæðinga viðræðna leita í handbók Farage og Reform Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Nýr bæjarstjóri, morðhótanir og afar samrýmdar systur Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Bein útsending: Kynna meirihlutasáttmála og nýjan bæjarstjóra Hafnarfjarðar Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Mikil spenna í veðurkortunum Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Heiða greinir frá morðhótunum Selja húsnæðið vegna andstöðu íbúa Komu vélarvana fiskibát til hjálpar Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Sátt á þingi um þjóðaratkvæði og beðið eftir fréttum úr borginni Bein útsending: Borgarfulltrúar kveðja „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Afbókuðu hantaveiruskipið í maí en enn væntanlegt í ágúst Sjá meira