Nýjustu foreldar landsins fá hærri greiðslur en foreldrar gærdagsins Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar 15. október 2016 12:27 Sex börn fæddust í gær en fjölskyldur þeirra falla ekki undir nýju reglurnar. Vísir/Getty
Ný reglugerð um hækkun hámarksgreiðslna til foreldra í fæðingarorlofi tók gildi á miðnætti. Fimm börn hafa fæðst á Landspítalanum það sem af er degi og njóta fjölskyldur þeirra góðs af breytingunum. Sex börn fæddust í gær en fjölskyldur þeirra falla ekki undir nýju reglurnar. Ljósmóðir á spítalanum segir að bæði gærdagurinn og morguninn hafi gengið eðlilega fyrir sig á spítalanum. Ákveðið var á fundi ríkisstjórnarinnar þann sjöunda október síðastliðinn að fæðingarorlofsgreiðslur yrðu hækkaðar í 500 þúsund krónur frá og með 15. október, að tillögu Eyglóar Harðardóttur félags- og húsnæðismálaráðherra. Hámarksgreiðslur í fæðingarorlofi hafa hingað til verið 370 þúsund krónur, og því er um að ræða umtalsverða hækkun. Fæðingarstyrkur og lágmarksgreiðslur í fæðingarorlofi hækka einnig frá og með deginum í dag. Fyrsta barnið sem fæðist inn í þessi nýju réttindi kom í heiminn um eitt á miðnætti í nótt. Rétt fyrir hádegi í dag höfðu fimm börn fæðst á Landspítalanum það sem af er degi. Sex börn fæddust á spítalanum í gær, það síðasta um kvöldmatarleytið, en fjölskyldur þeirra fá ekki að njóta þessara nýju réttinda. Kveðið hefur verið á um þessar hækkanir með reglugerð, en ekki með lögum frá Alþingi eins og venjan er, en nýbakaðir foreldrar sem geta ekki nýtt sér breytingarnar hafa gagnrýnt tímasetninguna talsvert þar sem þær gilda aðeins um foreldra barna sem fæðast, verða ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur í dag eða síðar. Fréttablaðið greindi til að mynda frá því í vikunni að dæmi væru um að konur væru að fresta gangsetningu og keisaraskurðum fram yfir helgi til þess að börn þeirra falli undir nýju reglugerðina.Foreldrar sem eignuðust barn fyrir daginn í dag gætu orðið af hundruðum þúsunda króna og því töluverðir fjármunir í húfi fyrir marga. Elín Gunnarsdóttir, vaktstjóri og ljósmóðir á Landspítalanum, sagði í samtali við fréttastofu að gærdagurinn og morguninn hefðu gengið eðlilega fyrir sig og starfsfólk á fæðingardeild hefði ekki orðið vart við að verðandi mæður væru að krossleggja fætur til að stjórna fæðingartímanum og falla þannig inn í nýju reglugjöfina.
Tengdar fréttir Ellilífeyrir og fæðingarorlof mun hækka Á fundi ríkisstjórnarinnar í gær var samþykkt að leggja til breytingar á hámarksgreiðslum til foreldra í fæðingarorlofi og hækkun á lífeyrisgreiðslum til eldri borgara. 8. október 2016 07:00 Verðandi mæður fresta gangsetningu fyrir hærri greiðslur 15. október taka gildi nýjar reglur um fæðingarorlofsgreiðslur. Hármarksgreiðlur hækka úr 370 í 500 þúsund krónur og því töluverðar hagsmunir í húfi. 13. október 2016 07:00 Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira
Ellilífeyrir og fæðingarorlof mun hækka Á fundi ríkisstjórnarinnar í gær var samþykkt að leggja til breytingar á hámarksgreiðslum til foreldra í fæðingarorlofi og hækkun á lífeyrisgreiðslum til eldri borgara. 8. október 2016 07:00
Verðandi mæður fresta gangsetningu fyrir hærri greiðslur 15. október taka gildi nýjar reglur um fæðingarorlofsgreiðslur. Hármarksgreiðlur hækka úr 370 í 500 þúsund krónur og því töluverðar hagsmunir í húfi. 13. október 2016 07:00