KA Inkasso-meistari | HK hélt sæti sínu | Fjarðabyggð féll Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 17. september 2016 16:15 KA tryggði sér sigur í Inkasso-deildinni vísir/stefán
KA tryggði sér sigur í Inkasso-deildinni í fótbolta í dag þegar liðið lagði Grindavík 2-1 á heimavelli í uppgjöri tveggja efstu liðanna. Bæði KA og Grindavík voru komin upp og aðeins spurning um hvort liðið myndi hampa sigrinum í deildinni. Grindavík þurfti sigur til að minnka forystu KA í eitt stig en KA tryggði sér sigurinn þegar ein umferð er eftir í deildinni. Andri Rúnar Bjarnason kom Grindavík yfir fyrir hálfleik en Ásgeir Sigurgeirsson og Hallgrímur Mar Steingrímsson tryggðu KA sigurinn og deildarmeistaratitilinn. HK hélt sætinu og Fjarðabyggð féll Heil umferð var í dag og tryggði HK sér sæti í deildinni á næsta tímabili með því að leggja Huginn 4-0 á útivelli. Teitur Pétursson kom HK yfir á 19. mínútu og var HK 1-0 yfir í hálfleik. Kristófer Eggertsson bætti öðru marki við á 71. mínútu, Ragnar Leósson skoraði á 85. mínútu og Bjarni Gunnarsson fjórða markið fjórum mínútum síðar. Fjaðarbyggð tapaði 2-1 fyrir Fram á útivelli og féll því niður í 2. deild. Fjarðabyggð varð að vinna til að eiga möguleika á að halda sæti sínu í deildinni og komst liðið yfir með marki Dimitrov Zelkjo á 62. mínútu. Ivan Parlov á 76. og 90. mínútu tryggði Fram sigurinn og felldi Fjarðabyggð. Leiknir Fáskrúðsfirði vann Leikni frá Reykjavík. 1-0. Leiknir F. á því enn tölfræðilegan möguleika á að halda sæti sínu í deildinni en liðið þarf að vinna HK stórt í síðustu umferðinni og treysta á að Huginn tapi stórt fyrir Selfossi því Huginn er með sjö mörkum betri markamun þegar þremur stigum munar á liðunum. Í hinum leikjum dagsins gerðu Haukar og Selfoss 1-1 jafntefli og Keflavík og Þór 2-2 jafntefli.
Íslenski boltinn Mest lesið Sakaður um svindl á HM í pílukasti Sport Hleður Kjartan lofi eftir frábæra frumraun með Aberdeen Fótbolti Óttast að Isak hafi fótbrotnað Enski boltinn Ótrúleg tíðindi á HM í pílukasti: „Mikið sjokk“ Sport Hjalti Þór ráðinn aðalþjálfari Álftaness Körfubolti HM í pílu: Littler flaug áfram og kvöldinu lauk með spennutrylli Sport Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti Túfa gerir þriggja ára samning í Svíþjóð Fótbolti Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Íslenski boltinn Albert skoraði í fyrsta sigri Fiorentina Fótbolti Fleiri fréttir Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Breiðablik kaupir Jónatan frá Norrköping Elías mættur til meistaranna KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Hilmar Árni til starfa hjá KR Segir fjórðung í bók Óla ósannan Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur „Verið heiður að spila í appelsínugulu með frábærum liðsfélögum“ Þekkir Egilshöllina vel og skoraði gegn fyrrum félögum Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Dæturnar vildu norður: „Mun alltaf gera allt fyrir þær“ Stjarnan sækir markvörð í 3. deildina „Ég var orðinn algjörlega bugaður“ Jónatan áfram á Hlíðarenda: „Var alltaf jákvæður fyrir því að framlengja“ Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull „Ég elska þig Ísland, takk fyrir allt!“ Sextán ára með fernu fyrir meistara Víkings Valur dregur sig úr Bose-bikarnum „Sagði bara við hann: Djöfulsins fíflið þitt“ Yngir upp í allt of gamalli deild Þróttur keypti Adam Árna frá Grindavík Sjá meira