Ljóst hvaða lið mætast í 16-liða úrslitum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 7. mars 2016 16:00 Guðjón Valur gæti mætt sínum gömlu félögum í Kiel í 8-liða úrslitunum. Vísir/Getty
Riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í handbolta lauk um helgina og því ljóst hvaða lið eru komin beint áfram í 8-liða úrslitin og hvaða lið mætast í 16-liða úrslitum. Nýtt keppnisfyrirkomulag er á keppninni í ár en skipt var í riðla eftir styrkleika liðanna. Sterkustu liðin fóru í A- og B-riðla en veikari lið í C- og D-riðla. Sigurvegara sterkari riðlanna, PSG og Barcelona, fara beint áfram í 8-liða úrslitin. Liðin í 2.-6. sæti úr A- og B-riðlum fara svo í 16-liða úrslitin. Efstu tvö liðin úr C- og D-riðlum mætast svo í sérstöku umspili um síðustu tvö sætin í 16-liða úrslitunum, eins og sjá má á myndinni hér fyrir neðan. Eftir fjórðungsúrslitin fara svo fjögur lið í svokallað Final Four sem er úrslitahelgi keppninnar og fer að venju fram í Köln í Þýskalandi í vor. 16-liða úrslitin fara fram síðar í þessum mánuði og verða nokkur Íslendingalið í eldlínunni. Kiel, lið Alfreðs Gíslasonar, mætir ungverska liðinu Pick Szeged og þá leikur Rhein-Neckar Löwen gegn Zagreb en þeir Alexander Petersson og Stefán Rafn Sigurmannsson leika með Löwen. Aron Pálmarsson og hans félagar í Veszprem leika gegn Zaporozhye frá Úkraínu. Róbert Gunnarsson og félagar í PSG munu mæta sigurvegaranum úr viðureign Löwen og Zagreb í 8-liða úrslitunum. Barcelona, lið Guðjóns Vals Sigurðssonar, mætir svo liðinu sem hefur betur í rimmu Kiel og Pick Szeged.As the #veluxehfcl group phase ends the Last 16 pairings are confirmed. Congrats to the teams still standing! pic.twitter.com/b5Z0mdHj5m— EHF Champions League (@ehfcl) March 6, 2016
Handbolti Mest lesið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Fótbolti Dönsk landsliðsstjarna dæmd Fótbolti Hundrað metra met Bolt „fallið“ Sport Golfáhrifavaldar í klandri vegna umdeildrar auglýsingar Golf Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Handbolti Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Enski boltinn Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Handbolti Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Handbolti Raheem Sterling ákærður Enski boltinn Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Fótbolti Fleiri fréttir Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Einn af strákunum okkar biðlar til Trump um samning Áfall í undirbúningi Íslands fyrir HM Gísli Þorgeir með níu mörk í níu skotum þegar Magdeburg vann Ofurbikarinn Díana varð meistari meistaranna eftir vítakeppni Fjórtán ára undrabarn spilar með Þorsteini Leó Landsliðskona í Val Breki nýtir sér ráð Viktors og er klár í harðan slag í Portúgal Mun Guðmundur reisa Holland við? Rekinn eftir óásættanleg samskipti við yngri leikmenn Elvar fer frá Magdeburg til Löwen: „Frábær bónus að spila með Hauki frænda“ Glænýtt gólf fyrir frumraun Arons en stúkurnar bíða Daníel með slitna hásin Kallar eftir naflaskoðun í norskum handbolta: „Bilið í fremstu þjóðir hefur aukist“ Rifu sig upp eftir vonbrigðin í gær og unnu Frakka eftir rosa endasprett Raunveruleiki sem þú getur ekki forðast Uppgjörið: Ísland - Þýskaland 31-33 | Þjóðverjar áttu alltaf svar Fylgist stoltur með litla bróður á EM: „Verið draumur hans í mjög langan tíma“ Með fullt hús stiga á leið í úrslitakeppni Mögnuð tilþrif Íslendingsins unga vekja athygli Viktor Gísli framlengir við Barcelona Stráklingarnir okkar fóru illa með Króata í fjórða sigrinum í röð á EM Costa-bræðurnir eftirsóttu völdu Flensburg Unnu leikina í riðlinum með samtals 32 mörkum og Króatar og Portúgalir bíða Strákarnir áfram með fullt hús Ungverjagrýlan hrjáir ekki U18 lið Íslands Yngsti Skipagötu-bróðirinn skoraði þrettán mörk í fyrsta leik á EM Fjórtán marka stórsigur í fyrsta leik Sjá meira