Veit ég hef kvatt landsliðið þrisvar eða fjórum sinnum Henry Birgir Gunnarsson skrifar 16. mars 2016 11:00 Andersson á HM í Katar. Hann hætti eftir þá keppni en er nú kominn aftur. vísir/getty
Sænska handboltagoðsögnin Kim Andersson getur ekki hætt að spila fyrir landsliðið. Hann snýr alltaf aftur. Þessi 33 ára örvhenta skytta hefur nokkrum sinnum hætt með landsliðinu áður og síðast eftir HM í Katar. Hann er nú í landsliðshópi Svía sem tekur þátt í forkeppni Ólympíuleikanna. Hann er búinn að skora 776 mörk í 219 landsleikjum og ætlar að bæta við þær tölur í næsta mánuði þó svo hann lofi því ekki að halda áfram eftir forkeppnina. „Ástæðan fyrir því að ég er kominn aftur er sú staðreynd að ég er í góðu formi. Andlega sem líkamlega. Því fannst mér eðlilegt að segja já þegar að kallið kom. Ég veit að ég hef kvatt landsliðið þrisvar eða fjórum sinnum áður en það hefur aðallega verið út af meiðslum. Eftir HM í Katar var öxlin á mér handónýt,“ sagði Andersson en öxlin á honum hefur náð fínum bata. Hann var nánast hættur að skjóta á markið nema í neyð en það hefur nú breyst. „Ég óttast ekki að öxlin á mér verði aftur ónýt. Ég varð að byrja að skjóta aftur því það var lítil ógn í mér án skota. Þá var alltaf nóg að koma í veg fyrir sendingaleiðirnar. Það er mjög ánægjulegt að geta skotið aftur á markið og verið verkjalaus.“ Andersson yfirgaf Kolding síðasta sumar og fór heim til Ystad. „Ég sakna Kolding og fylgist vel með liðinu. Það hefur aftur á móti verið frábært að koma heim til Ystad þar sem fjölskylda mín og vinir eru. Þetta hefur alltaf verið mitt félag og hér er gott að vera.“
Handbolti Mest lesið Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Enski boltinn Baulað á Alvarez hjá Atletico Madrid Fótbolti Er annar hestur kominn í hlaupið um heimsmeistaratitilinn? Formúla 1 Cody Gakpo orðaður við Manchester City Enski boltinn Uppgjörið: Breiðablik - Fram 3-4 | Fram kláraði dæmið í fyrri hálfleik Íslenski boltinn Dybala mataði þrennu fyrir Malen gegn Fiorentina Fótbolti Ágúst Orri mættur í hollensku úrvalsdeildina Íslenski boltinn Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Enski boltinn Ísak Andri nálgast sænsku úrvalsdeildina Fótbolti „Maður var aldrei alveg rólegur“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Einn af strákunum okkar biðlar til Trump um samning Áfall í undirbúningi Íslands fyrir HM Gísli Þorgeir með níu mörk í níu skotum þegar Magdeburg vann Ofurbikarinn Díana varð meistari meistaranna eftir vítakeppni Fjórtán ára undrabarn spilar með Þorsteini Leó Landsliðskona í Val Breki nýtir sér ráð Viktors og er klár í harðan slag í Portúgal Mun Guðmundur reisa Holland við? Rekinn eftir óásættanleg samskipti við yngri leikmenn Elvar fer frá Magdeburg til Löwen: „Frábær bónus að spila með Hauki frænda“ Glænýtt gólf fyrir frumraun Arons en stúkurnar bíða Daníel með slitna hásin Kallar eftir naflaskoðun í norskum handbolta: „Bilið í fremstu þjóðir hefur aukist“ Rifu sig upp eftir vonbrigðin í gær og unnu Frakka eftir rosa endasprett Raunveruleiki sem þú getur ekki forðast Uppgjörið: Ísland - Þýskaland 31-33 | Þjóðverjar áttu alltaf svar Fylgist stoltur með litla bróður á EM: „Verið draumur hans í mjög langan tíma“ Með fullt hús stiga á leið í úrslitakeppni Mögnuð tilþrif Íslendingsins unga vekja athygli Viktor Gísli framlengir við Barcelona Stráklingarnir okkar fóru illa með Króata í fjórða sigrinum í röð á EM Costa-bræðurnir eftirsóttu völdu Flensburg Unnu leikina í riðlinum með samtals 32 mörkum og Króatar og Portúgalir bíða Strákarnir áfram með fullt hús Ungverjagrýlan hrjáir ekki U18 lið Íslands Yngsti Skipagötu-bróðirinn skoraði þrettán mörk í fyrsta leik á EM Fjórtán marka stórsigur í fyrsta leik Var sagt upp á stórafmælinu og er haldinn út í heim Besti handboltamaður heims fór í markið Hafnaði mörgum góðum tilboðum og fór frekar heim Sjá meira