Þarf 700 milljónir til viðbótar vegna móttöku hælisleitenda Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 14. desember 2016 23:18 Sprenging hefur orðið í hælisumsóknum á árinu og þarf meira fjármagn í málaflokkinn en gert var ráð fyrir á fjárlögum. vísir/gva
Gerð er tillaga um 700 milljóna framlag á fjáraukalögum þessa árs vegna aukins fjölda hælisleitenda en frumvarp til fjáraukalaga var lagt fram á þingi í dag. Í frumvarpinu kemur fram að á þessu ári hafi fordæmalaus fjöldi fólks sótt um hæli hér á landi en það stefnir í að umsóknir um alþjóðlega vernd verði um 1100 á árinu. Er það þreföldun umsókna á milli ára. Af þessum sökum er áætlað að kostnaður vegna hælismála aukist um tæplega 1,5 milljarða umfram gildandi fjárlög þessa árs en þar af hafa 770 milljónir verið fjármagnaðar með fyrri fjáraukalögum á árinu. Því koma 700 milljónir til viðbótar nú. „Fyrir liggur að helstu veikleikar þessa kerfis snúa að miklum fjölda umsækjenda frá öruggum upprunaríkjum, einkum ríkisborgarar Albaníu og Makedóníu sem telja yfir helming allra umsókna, sem er mun hærra hlutfall en á hinum Norðurlöndunum,“ segir í frumvarpinu. Vegna gríðarlegs fjölda umsókna, ekki síst nú í haust, hefur ekki tekist í öllum tilvikum að útvega hælisleitendum hagkvæmustu búsetuúrræðin. Ýmsar aðgerðir hafa þó verið mótaðar til að taka á vandanum að því er segir í frumvarpinu og er þegar farinn að sjást árangur í þeim efnum. Þá er þess vænst að þær muni skila sér að fullum þunga í upphafi árs 2017. Að auki fær Landspítalinn 100 milljónir króna á fjáraukalögum en sú aukafjárveiting er tilkomin vegna fjölda hælisumsókna og aukins fjölda ferðamanna. „Þannig hefur fjöldi hælisleitenda slegið öll fyrri met á yfirstandandi ári og kostnaður spítalans vegna þeirra einstaklinga sem leitað hafa til hans hefur aukist að sama skapi.“
Mest lesið „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Innlent Koma af fjöllum varðandi áform borgarinnar Innlent Spreyttu þig á PISA-spurningunum Innlent Lögreglan leitar tveggja drengja frá Borgarnesi Innlent Uppsagnir hjá dómsmálaráðuneytinu Innlent Salurinn veltist um af hlátri þegar vitni hringdi inn frá Albaníu Innlent Hjólahvíslarinn og lögreglan björguðu Latabæ Innlent Drengirnir hafi látið vita af sér Innlent Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Erlent Þriggja ára fangelsi fyrir að frelsissvipta æskuvin sinn Innlent Fleiri fréttir Trúfélögin hafi greinilega ekki fylgst með innhólfinu Þriggja ára fangelsi fyrir að frelsissvipta æskuvin sinn Brim sýknað af kröfum foreldra sjómannsins Sundabraut verði eitt það fyrsta á dagskrá Uppsagnir hjá dómsmálaráðuneytinu Gefa ríkisstjórninni rauða spjaldið Ríkið lagði eldri borgarana Laun Wolt sendla undir þúsund krónum á klukkutímann „Get ég komið fjórtán lítrum fyrir í tíu lítrum af flöskum?“ Koma af fjöllum varðandi áform borgarinnar Rúmlega þúsund farþegar fært til flug og enginn sáttafundur í kjaradeilu Drengirnir hafi látið vita af sér Sækjandi fékk sínu framgengt: „Fabríkera einhver gögn og leggja fram“ Afturkalla lóðaúthlutun til tveggja trúfélaga Spreyttu þig á PISA-spurningunum „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Hlaut Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti Geti fundið Tækniskólanum góðan stað á Akureyri Hjólahvíslarinn og lögreglan björguðu Latabæ Með lambúshettu að prófa sírenur og gjallarhorn Lögreglan leitar tveggja drengja frá Borgarnesi Alelda bíll í Kópavogi Grunaður barnaníðingur gengur laus Varanlega sviptur vörslu á hundum sem hann skildi eftir í sóðaskap Orð yfirmanns síns „ósanngjörn“ og „ófagleg“ Dularfullt drónaflug í Kópavogi vekur íbúum ugg Gæti þaggað niður í röddum landsbyggðarinnar Báðir aðstoðarmennirnir horfnir á stuttum tíma Tvö mál í dag þar sem ógnað var með hnífi Salurinn veltist um af hlátri þegar vitni hringdi inn frá Albaníu Sjá meira