Logi Geirs sýndi engin svipbrigði þegar Lijewski jafnaði | Myndband Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. maí 2016 18:44 Aron Pálmarsson í úrslitaleiknum og Logi Geirsson upp í stúku. Vísir/EPA
Íslendingar eignuðust ekki Meistaradeildarmeistara í handbolta í dag eins og svo margoft á undanförnum árum en það munaði svo ótrúlega litlu hjá Aroni Pálmarssyni og félögum í Veszprém. Veszprém tapaði úrslitleiknum í vítakeppni á móti pólska liðinu Vive Tauron Kielce eftir að hafa misst niður yfirburðarforystu í seinni hálfleiknum. Veszprém var átta mörkum yfir, 24-16, þegar minna en 20 mínútur voru eftir en tapaði síðustu tuttugu mínútunum 13-5. Krzysztof Lijewski skoraði jöfnunarmarkið rétt fyrir leikslok og tryggði Pólverjunum framlengingu. Eftir hana var enn jafnt og því réðust úrslitin í vítakeppni. Logi Geirsson, fyrrum atvinnumaður og leikmaður íslenska landsliðsins, er mikill vinur Arons og hann var mættur til Köln til að fylgjast með leiknum eins og fjöldi annarra Íslendingar. Annar handboltamaður, Kristinn Björgúlfsson, tók upp myndband af Loga á lokasekúndum leiksins eins og sjá má í myndbandinu hér fyrir ofan. Viðbrögð Loga eru afar sérstök en hann sýnir engin svipbrigði á meðan allt fer á annan endann allt í kringum hans. Logi vildi að sjálfsögðu sjá sinn mann vinna Meistaradeildina eins og allt íslenskt handboltaáhugafólk en líklegt trúði hann því bara ekki hvernig ungverska liðinu tókst að klúðra þessu. Aron Pálmarsson átti annars mjög góðan leik í liði Veszprém og var valinn besti leikmaður úrslitahelgarinnar þrátt fyrir tapið í úrslitaleiknum. Aron Pálmarsson skoraði fimm mörk í leiknum sjálfum og nýtti svo vítið sitt í vítakeppninni. Slóveninn Gasper Marguc og Mirsad Terzic klikkuðu á sínum vítaköstum.@logigeirsson siðustu 10 sek i venjulegum @tomthordarson @olisdeild @fimmeinn pic.twitter.com/u3CLeWrn8p— Kiddi Björgúlfss (@KiddiBje) May 29, 2016
Handbolti Mest lesið Gunnlaugur fékk ekki að klára hringinn en endaði á fugli Golf Gunnlaugur Árni á U.S. Open Golf Rekin fyrir falsfrétt um að pabbi Messi væri dáinn Fótbolti Cristiano Ronaldo eftir Kongó-klúðrið: „Það vantaði ekkert upp á“ Fótbolti Reyndur lýsandi ruglaðist á liðum á HM og var rekinn Fótbolti Sjáðu innslagið um Gunnlaug Árna í útsendingu US Open Golf Tár hetjunnar höfðu áhrif og mamma hans fær að koma á HM Fótbolti Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Handbolti Kanadamenn unnu stórsigur en misstu mann af velli fótbrotinn Fótbolti Straujaði tökumann á HM sem fékk treyju að gjöf Fótbolti Fleiri fréttir Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Sjá meira