Sjö manna fjölskylda ákvað að hætta fatakaupum í heilt ár Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar 14. júlí 2016 20:00
Fimm barna móðir, sem ákvað að hætta að kaupa föt á fjölskyldumeðlimi í heilt ár, segir engan fataskort hafa verið á heimilinu þó þar séu börn sem vaxi hratt. Í stað þess að kaupa alltaf nýtt sé hægt að nýta betur það sem til er. Sigrún Harpa Wahlgren býr í Fossvogi ásamt manni sínum og fimm börnum, sem eru á aldrinum tíu mánaða til sautján ára. Síðustu áramót strengdi hún áramótaheit um að kaupa ekki föt á fjölskyldumeðlimi út árið. „Fyrst og fremst var þetta kannski vegna þess að ég vildi kenna börnunum mínum meira að meta það sem þau eiga. Mér fannst þau bara eiga of mikið. Ef ég keypti eitthvað þá bættist það bara í hrúguna inni í skáp og þau tóku varla eftir því,“ segir Sigrún. Enginn fataskortur hefur verið á heimilinu þó þar séu börn sem vaxi hratt. Allir taka þátt í verkefninu saman. „Okkur hefur ekkert vantað neitt þetta ár. Nema þá kannski aðeins á þenna litla sem var bara fjögurra mánaða þegar við byrjuðum á þessu. Og þá höfum við keypt bara það sem er algjörlega nauðsynlegt. Og það er mjög lítið,“ segir Sigrún. Hún ákvað líka að endurnýta þær flíkur sem til eru á heimilinu en hafa ekki verið notaðar í mörg ár. Þá kemur sér vel að vera lunkinn á saumavélina. Sigrún saumar meðal annars kjóla á dætur sínar úr skyrtum fjölskylduföðursins og húfur og vesti úr gallabuxum, ásamt því að breyta og bæta gamla jakka sem leyndust inni í skáp. Afrakstrinum deilir hún á Instagram og á bloggsíðu sinni – Remade in Iceland. Ljóst er að fjölskyldan kemur ekki til með að detta aftur í fyrra neyslumynstur. „Ég hugsa að þetta áhugamál, að fara í búðir og kaupa eitthvað sem vantar ekki, sé bara alveg liðið undir lok. Ég held að það sé bara nauðsynlegt að allir hugsi aðeins málið ef að við ætlum ekki að búa til svona mikið rusl. Það þarf ekki að hætta að kaupa, bara kaupa minna,“ segir Sigrún Harpa Wahlgren.
Mest lesið „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Innlent Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Erlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Óveður gengur yfir landið Innlent Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Erlent Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Innlent Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Innlent Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Fleiri fréttir Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Sjá meira