Færri njóta fjárhagsaðstoðar Reykjavíkurborgar til framfærslu en í fyrra Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 6. júní 2016 18:30 Frá sólríkum degi í Reykjavík. Vísir/Andri Marinó
Heildarútgjöld Reykjavíkurborgar til fjárhagsaðstoðar lækkuðu um ríflega 20 prósent á fyrstu þremur mánuðum ársins vegna fækkunar notendum fjárhagsaðstoðar til framfærslu. Notendur voru tæpum 24 prósentum færri á fyrstu þremur mánuðum ársins heldur en á fyrstu þremur mánuðum síðasta árs. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Þannig voru 1469 manns sem þáðu fjárhagsaðstoð til framfærslu á fyrstu þremur mánuðum ársins miðað við 1924 í fyrra. „Á síðustu árum hefur verið gripið til fjölbreytilegra ráðstafana til að auka þjónustu við þá sem fá fjárhagsaðstoð til framfærslu, einkum þá sem eru atvinnulausir eða sjúklingar. Ráðstafanir þessar eru ýmist alfarið á hendi velferðarsviðs eða í samstarfi við aðrar stofnanir. Má þar nefna að virkniráðgjafar voru ráðnir í upphafi árs 2010 til starfa á þjónustumiðstöðvum, Atvinnutorg opnaði í febrúar 2012, Stígur, þjónusta við atvinnuleitendur, var stofnaður í mars 2014, atvinnumáladeild var stofnuð hjá Reykjavíkurborg árið 2012, færniteymi með þjónustu fyrir óvinnufæra og matsteymið Velvirk hófu starfsemi árið 2014. Þá hefur verið lögð sérstök áhersla á þjónustu við ungt fólk og þá sem ljúka bótarétti sínum hjá Vinnumálastofnun,“ segir í tilkynningu. Þá kemur fram að þær aðgerðir sem gripið hefur verið til þess að fækka notendum fjárhagsaðstoðar byggi á virku samráði og þátttöku notenda. „Áhersla er á valdeflingu með það að leiðarljósi að einstaklingurinn taki ábyrgð á eigin lífi og geti séð sér og sínum farborða án aðkomu sveitarfélagsins.“ Borgarstjórn mun fjalla sérstaklega um þetta á næsta fundi sínum á morgun.
Mest lesið Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Innlent Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Erlent Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Innlent Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Innlent Lýsa eftir þekktum öfgamanni Erlent Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Innlent Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Innlent Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Innlent Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Innlent Grunuðum ISIS-liða sleppt úr fangelsi í maí Erlent Fleiri fréttir Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Strandaglópar á Spáni og vont veður á Brennslunni Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Evrópumálin, sala áfengis og kjarasamningar á Sprengisandi Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Sjá meira