Legg sálina í verkið Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 17. ágúst 2016 09:30 Þórdís, Jón og María sýna saman á Sólheimum.
Það er í Ingunnarstofu á Sólheimum sem Jón Geir Ágústsson og dætur hans, Þórdís og María, opna sýninguna Pensill, nál og hnífur á föstudaginn klukkan 15. Jón er þar með útskurð, Þórdís rósapúða sem hún saumar af fingrum fram og María með málverk, „smáævintýri á striga“, eins og hún orðar það sjálf. Jón og Þórdís búa á Akureyri en María á Ítalíu. Hún er samt stödd heima eins og er.Innsta kjarna kallar Jón þessi verk, þau eru sex til sjö sentimetra há.Jón svarar símanum. „Ég er norðan heiða enn þá, en fer nú að snúa nefinu í suður. Við þurfum að fara að setja upp sýninguna,“ segir hann glettinn. Hann kveðst hafa einbeitt sér að smágerðum verkum síðustu ár, sumir útlendingar kalli þau íkon, hann kalli þau Innsta kjarna. „Ég klýf sex til sjö sentimetra langa trjágrein við innsta kjarna og annan helminginn svo aftur. Þannig bý ég til þrennu sem ég sker út í og tengi saman. Legg sálina í verkið ef ég má vera svo hátíðlegur. Þessa muni er gott fyrir fólk að hafa fyrir framan sig eða í lófanum ef það þarf að vera í einrúmi og láta hugann reika inn að innsta kjarna,“ útskýrir hann.Þórdís sækir innblástur í gamlar handverkshefðir. Jón er fæddur 1935. Hann var í stórum verkefnum lengst af ævinni sem tengdust húsbyggingum. „Ég var eiginlega alinn upp á trésmíðaverkstæði föður míns og hef alltaf þurft að hafa eitthvað milli handanna, blýant og pappír eða spýtu og hníf og eignaðist góð útskurðarjárn um 15 ára aldurinn.“ Hér hefur maríuerla tyllt sér í eina myndina hjá Maríu.Meðal sýningargripa á Sólheimum verður Valþjófsstaðahurðin, gerð af Jóni, helmingi minni en sú upprunalega. Einnig krossar úr sama efni og Auðunarstofa og dómkirkjan á Hólum. „Ég hef fiktað við að vinna úr margs konar efni, til dæmis hvaltönnum, sem maður þorir varla að nefna, hvað þá sýna. Það eru svo margir búnir að gleyma því að hvalreki varð oft til bjargar Íslendingum áður fyrr.“
Mest lesið Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Lífið Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Menning Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun Eva Marie Saint er látin Lífið „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Lífið Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Tónlist Fleiri fréttir Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París Sjá meira