Maðurinn í haldi náði að láta vita af sér með því að klifra milli svala á 4. hæð Birgir Olgeirsson skrifar 1. desember 2016 15:03 Annar mannanna sem voru handteknir. Vísir/GVA
Tveir eru í haldi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu grunaðir um að hafa svipt karlmann frelsi í Fellsmúla í Reykjavík. Þetta staðfestir Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við Vísi. Maðurinn sem grunað er að hafi verið sviptur frelsinu, náði að gera lögreglu viðvart. „Það er sem sagt til rannsóknar, hvort að maður hafi verið sviptur frelsi og haldið þarna gegn vilja sínum,“ segir Grímur. Lögreglu barst tilkynning um málið á öðrum tímanum í dag en Grímur segir að aðgerðir á vettvangi hafi tekið stuttan tíma. „Maðurinn lét vita af sér og var lemstraður og gaf sinn framburð og það voru handteknir tveir menn,“ segir Grímur.Klifraði á milli svala Maðurinn sem grunað er að hafi verið sviputur frelsinu, náði að komast út úr íbúðinni og klifra á milli svala á fjórðu hæð til að láta vita af sér. Grímur staðfestir þessa frásögn og segir að þannig hafi tilkynningin hljóðað sem barst lögreglu. Sjónarvottur Vísis á vettvangi sá annan mannanna sem voru handteknir reyna að flýja af vettvangi en lögreglan hafði hendur í hári hans fyrir utan blokkirnar við Fellsmúla 9 og 11. Maðurinn sem er grunað að hafi verið sviptur frelsinu var leiddur út í sjúkrabíl af lögreglu á nærbuxunum einum klæða.Óvíst með gæsluvarðhald Grímur segir enga ákvörðun hafa verið tekna að svo stöddu hvort farið verður fram á gæsluvarðhald yfir mönnunum tveimur. Lögreglan var með mikinn viðbúnað á svæðinu og rannsakaði hvern krók og kima. Var til að mynda tæknideild lögreglunnar kölluð til.
Tengdar fréttir Lögreglan með umfangsmiklar aðgerðir við Fellsmúla Um fjórir lögreglubílar voru þar fyrir utan þegar ljósmyndara bar að. 1. desember 2016 14:07 Mest lesið Úlfar hættir sem lögreglustjóri Innlent Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Innlent Sjö ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps Innlent Telur víst að gögnin hafi komið frá sérstökum sjálfum Innlent Dr. Bjarni er látinn Innlent „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Innlent Geyma fjöldann allan af fullum bensínkútum í bíl í Hlíðunum Innlent Rannsóknarleyfi Rastar hafnað Innlent Hjörtur Torfason er látinn Innlent Tilkynnti um stolið hjól og réðst svo á þjófinn Innlent Fleiri fréttir Hjörtur Torfason er látinn Fá engar bætur fyrir stolin bíl „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Syndir 1.600 kílómetra í kringum landið: Borðar tíu þúsund kalóríur á dag fyrir svaðilförina Ekkert fundist af báti sem sagður er hafa hvolft Gjörunnin matvæli tæpur helmingur af orkuinntöku landsmanna Tilkynnti um stolið hjól og réðst svo á þjófinn „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Máttu skikka nemanda í tvö sjúkrapróf samdægurs Njósnari sér að sér og synt í kring um Ísland Vill deila þekkingu á jarðvarma með Úkraínu Bað forseta að taka „stjórnarliða á skólabekk og tukta þá til“ Sjö ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps Blindir vilja Hljóðbókasafnið heim Stjórnarandstaða kvartar undan starfi í velferðarnefnd Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Úlfar hættir sem lögreglustjóri Ráðherra hafnaði loftslagsrannsókn vegna ófullnægjandi lagaramma Hafnar því alfarið að hafa lekið gögnunum Nú má heita Gúníta Ljósynja Dawn Fólk varað við aukinni hættu á gróðureld Sala á Íslandsbankabréfum hafin og Jón Óttar sakar Ólaf Þór um leka Rannsóknarleyfi Rastar hafnað Telur víst að gögnin hafi komið frá sérstökum sjálfum Miðhúsabraut lokuð eftir að ekið var á vegfaranda á hlaupahjóli Yfir þrjú hunduð eftirskjálftar Mál Oscars sé barnaverndarmál en ekki útlendingamál Bein útsending: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Vara við aukinni hættu á gróðureldum á Austurlandi Stór skjálfti rétt hjá Grímsey Sjá meira
Lögreglan með umfangsmiklar aðgerðir við Fellsmúla Um fjórir lögreglubílar voru þar fyrir utan þegar ljósmyndara bar að. 1. desember 2016 14:07