Sex krapaflóð féllu á veginn um Súðavíkurhlíð: „Það hættulega í þessu tilfelli var að vegurinn var ekki lokaður“ Birgir Olgeirsson skrifar 15. mars 2016 15:51 Pétur G. Markan segir löngu kominn tíma á Álftafjarðargöng á samgönguáætlun en sex krapaflóð féllu á veginn um Súðavíkurhlíð aðfaranótt mánudags. Vísir
Sex krapaflóð féllu á veginn um Súðavíkurhlíð í Álftafirði þegar vitlaust veður gekk yfir Vestfirði aðfaranótt mánudags. 22 snjóflóðagil eru í Súðavíkurhlíð en vegirnir um hana og Kirkjubólshlíð í Skutulsfirði, þar sem einnig eru þekkt snjóflóðagil, er leiðin á milli Súðavíkur og Ísafjarðar. Sú leið er tenging íbúa Ísafjarðarbæjar og Bolungarvíkurkaupstaðar við meginlandið og er sveitarstjóri Súðavíkurhrepps, Pétur G. Markan, þeirrar skoðunar, sem og margir aðrir íbúar þessa svæðis, að nú sé kominn tími á að ríkið viðurkenni hættuna sem er af þessum vegi með því að koma Álftafjarðargöngum á samgönguáætlun.Hluti þeirra flóða sem féllu á veginn um Súðavíkurhlíð aðfaranótt mánudags.Vísir/Pétur MarkanVegurinn um hlíðina ekki lokaður „Það hættulega í þessu tilfelli var að vegurinn var ekki lokaður,“ segir Pétur um krapaflóðin sem féllu á veginn um Súðavíkurhlíð aðfaranótt mánudags. „Stundum ná menn að spá fyrir um snjóflóðin og loka hlíðinni en í þessu tilfelli var hún ekki lokuð. Með auðveldum hætti hefði einhver geta verið þarna á ferð og fengið þetta á sig og þá þarf ekki að spyrja að leikslokum,“ segir Pétur. Hann segir hljóðið ekki aðeins þungt í Súðvíkingum vegna þessa ástands heldur einnig þeirra sem búa í Ísafjarðarbæ og Bolungarvík. „Við megum ekki gleyma að það er umferð í báðar áttir, þannig að hættan er gífurlega mikil fyrir fólk sem býr á norðanverðum Vestfjörðum sem nýtir þessa leið.“Þingmenn vilja Álftafjarðargöng á samgönguáætlun Ísfirski fréttamiðillinn Bæjarins besta greinir frá því í dag að Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, mun flytja þingsályktunartillögu á Alþingi á næstu dögum þess efnis að Álftafjarðargöng fari inn á samgönguáætlun. Ólína gerði það einnig árið 2013 en hafði ekki erindi sem erfiði. Meðflutningsmenn hennar eru þingmenn úr Norðvesturkjördæmi, Einar K. Guðfinnsson forseti Alþingis, Lilja Rafney Magnúsdóttir þingmaður Vinstri grænna, Jóhanna Sigmundsdóttir þingmaður Framsóknarflokks, Haraldur Benediktsson þingmaður Sjálfstæðisflokks og Elsa Lára Arnardóttir þingmaður Framsóknarflokks.Leiðin á milli Ísafjarðar og Súðavíkur.Vísir/LoftmyndirDaglegar ferðir tvöfalda árlegar dánarlíkur Árið 2006 var gerð skýrsla þar sem áhætta vegfarenda var metin sem ferðast um vegina um Súðavíkurhlíð og Kirkjubólshlíð. Var niðurstaða skýrslunnar sú að fyrir þá sem ferðast daglega um Súðavíkurhlíð er snjóflóð- og grjóthrunshættan nálægt því að tvöfalda árlegar dánarlíkur í umferðinni, sé miðað við meðaldánarlíkur Íslendinga í umferðinni, sem er talið afar óviðunandi. „Þessi úttekt á Súðavíkurhlíð dregur fram þá staðreynd að þetta er með hættulegustu vegum landsins. Miðað við þá niðurstöðu er mjög eðlilegt að Álftafjarðargöng verði sett inn á samgönguáætlun, við biðjum ekki um annað, þannig að ríkið sýni allavega skilning á því að hér þurfi á einhverjum tímapunkti að koma göng,“ segir Pétur. Dýrafjarðargöng, á milli Dýrafjarðar og Arnarfjarðar, fara væntanlega í útboð síðar á árinu og segir Pétur það vera eðlilega kröfu að Álftafjarðargöng verði sett á samgönguáætlun í kjölfarið.
Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Innlent Fleiri fréttir Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Sjá meira