Framboðsfrestur hefur enda verið kynntur sem 20. maí hingað til og er ekki nema von að frambjóðendur ruglist. Yfirkjörstjórnir í öllum kjördæmum, utan Norðausturkjördæmis, hafa óskað eftir því að fá meðmælalistana í dag til yfirferðar svo hægt verði að gefa út vottorð um framboð áður en næsta vika er liðin. Kjörstjórn í Norðausturkjördæmi óskar eftir listum 17. maí næstkomandi. Vottorði og meðmælalistum verður svo skilað til innanríkisráðuneytisins fyrir miðnætti föstudaginn 20. maí.

Síðasti frambjóðandinn sem steig fram var Magnús Ingiberg Jónsson frá Svínavatni. Hann er bjartsýnn en það fylgja því ókostir að hafa verið lengi að taka af skarið. „Þetta er svona að þokast en mætti ganga betur. Það virðist vera búið að safna svo mikið sums staðar. Aðrir eru búnir að fara á undan manni og kemba svæðið. Við gefumst ekkert upp.“
Yfirkjörstjórnir fara vandlega yfir það að ekki sé sama nafn tvisvar á listunum. Fari svo að einhver meðmælandi hafi skrifað á lista tveggja frambjóðenda fellur nafnið út á báðum listum. Það er vegna svoleiðis vandræða sem yfirkjörstjórn vill hafa viku til að gefa frambjóðendum svigrúm til að laga listann. „Fresturinn getur auðvitað ekki orðið lengri en svo að við eigum kost á því að fara yfir það sem skilað er til viðbótar og gefa út vottorðin, þannig að fólk komist með þetta í ráðuneytið fyrir miðnætti. Þetta er allt að bresta á,“ segir Erla S. Árnadóttir, formaður yfirkjörstjórnar í Reykjavíkurkjördæmi norður.

Elísabet Jökulsdóttir á sömuleiðis í vandræðum með að fá næga meðmælendur á landsbyggðinni. „Mig vantar aðallega frá Austfjörðum og Norðurlandi. Ég verð sennilega bara að fljúga norður og vinna einn dag í Kjarnafæði og álverinu.“
Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 13. maí