Þingmaður Framsóknarflokksins: Vonar að Sigmundur svari ekki Kára Jakob Bjarnar skrifar 18. mars 2016 10:35 Kári og Sigmundur Davíð hafa eldað grátt silfur og þingflokki Framsóknarflokksins, ef marka má Harald Einarsson, er ekki skemmt eftir nýjasta útspil Kára.
Haraldur Einarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, skrifar langa færslu á Facebooksíðu sína þar sem hann fordæmir opið bréf Kára Stefánssonar, forstjóra íslenskrar, sem stílað er á forsætisráðherra og birtist í morgun. Grein Kára hefur vakið mikla athygli og ef marka má orð Haraldar þá er Framsóknarmönnum ekki skemmt. Pistill Haraldar er undir yfirskriftinni: „Þegar skortir rökin“ og þar segir meðal annars: „Ég velti fyrir mér eftir lestur þessa bréfs á hvaða leið Kári er miðað við rökin sem hann notar. Niðrar forsætisráðherra og dreifir gróusögum líkt og einn þingmaður fyrr í vikunni. Eru það hagsmunir fyrirtækis Kára að spítalinn verði í Vatnsmýri?“ spyr Haraldur.Haraldur Einarsson segir opið bréf Kára mestu rökleysu sem hann hefur séð.Kári og Sigmundur Davíð hafa eldað grátt silfur lengi, og ekki síst í tengslum við undirskriftasöfnun Kára sem hann kallar endurreisn heilbrigðiskerfisins. Sú undirskriftasöfnun hefur slegið öll met en þar hafa rétt tæp 85 þúsund einstaklinga fært nafn sitt til bókar. Haraldi er ekki skemmt og grípur til líkingarmáls úr heimi sem hann þekkir vel sem frækinn hlaupari á árum áður, en besti tími hans er 11,02 sekúndur í 100 metra hlaupi: „Það er nú þannig í spretthlaupi að maður hleypur ekkert hraðar með því að reyna að fella aðra. Og ég vona að Sigmundur fari ekki að svara þessari vitleysu. Því Kára virðist skorta rökin hvers vegna Landspítalinn ætti að vera í Vatnsmýri og fer því að rífa niður persónuna. Þetta er greinilega sjálfstætt framhald að því þegar Kári kallaði Sigmund „lítinn offitusjúkan tveggja ára dreng“. Það gerist hjá fólki sem hefur sannfæringu en skortir rök.“ Haraldur telur grein Kára einhverja mestu rökleysu sem hann hefur séð.Þegar skortir rökinKári Stefánsson sendi í morgun opið bréf til Forsætisráðherra. Eina málefnið sem ég gat lesið úr þ...Posted by Haraldur Einarsson on Friday, March 18, 2016Kári ráðleggur Sigmundi að fara í sjóbað, horfa þá lengi í spegil og þylja möntru: það er gaman að vera forsætisráðherra, það er gaman að vera forsætisráðherra... þar til hann fer að trúa því sjálfur.
Tengdar fréttir Segir forsætisráðherra vinna skemmdarverk Kári Stefánsson segir það skemmdarverk af hálfu forsætisráðherra að leggja til breytingar á staðsetningu nýs Landspítala á þessari stundu. Undirskriftarsöfnun hans fyrir endurreisn heilbrigðiskerfisins er nú orðin sú stærsta í Íslandssögunni. 13. mars 2016 18:45 Kári um offituummælin: „Þessi skítur er á mína ábyrgð" Kári Stefánsson hefur beðið Sigmund Davíð Gunnlaugsson afsökunar á ummælum sem höfð voru eftir honum í gær þar sem hann líkti forsætisráðherra við tveggja ára gamlan offitusjúkling. 6. febrúar 2016 11:29 Kallar á vitundarvakningu í læknastétt Guðmundur Jóhannsson er bráða- og lyflæknir á bráðamóttöku Landspítalans. Hann segir auknar fjárveitingar til heilbrigðiskerfisins duga skammt ef mataræði Íslendinga tekur ekki breytingum. Koma megi í veg fyrir marga króníska lífsstílssjúkdóma sem eru dýrir fyrir samfélagið með breyttu mataræði. 18. mars 2016 07:00 Kári segir að Sigmundi verði „hent út á eyrunum við næstu kosningar“ Kári Stefánsson segir Sigmund Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, ekki hlusta á fólkið í landinu og vísar í orð hans á þingi í vikunni í óundirbúnum fyrirspurnartíma. 18. febrúar 2016 10:37 Sigmundur Davíð kallar Kára mannvin og miskunnsaman samfélagsrýni Ritdeilum forsætisráðherra og Kára Stefánssonar er hvergi nærri lokið. 27. janúar 2016 12:06 Hæstvirtur forsætisráðherra Opið bréf til Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar Sigmundur Davíð, það eru ekki nema nokkur ár síðan þú komst inn í íslensk stjórnmál eins og ferskur vindur á vordegi. Þú varst ungur og hugrakkur og horfðir yfir landið hvössum augum og sást hvað skipti máli og hvað ekki. Þú braust inn 18. mars 2016 07:00 Kári líkir Sigmundi Davíð við tveggja ára gamlan offitusjúkling "Why should I have a rivalry with this obese two-year-old little boy?“ 5. febrúar 2016 16:56 Kári skrifar opið bréf til Sigmundar Davíðs: Segir forsætisráðherra í stríði við samstarfsflokkinn Kári Stefánsson fer um víðan völl í opnu bréfi til Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra. 18. mars 2016 06:45 Kári slær Íslandsmetið í undirskriftasöfnun Undirskriftasöfnun Kára Stefánssonar, forstjóra Íslenskar erfðagreiningar, á vefsíðunni Endurreisn.is er orðin sú fjölmennasta í Íslandssögunni. 12. mars 2016 15:13 Kári segir Sigmund fýldan út í allt og alla: „Þá sérstaklega þjóðina sem hann á að stjórna“ Segir forsætisráðherra eiga að taka fátækari þjóðir sér til fyrirmyndar í stað þess að lítilsvirða þær. 26. janúar 2016 15:07 Mest lesið Allt að helmingur barna heima vegna veikinda Innlent Gjaldtaka af bílum sé hærri en fjárframlög til vegagerðar Innlent Strætó ekið á hjólreiðamann í Laugardal Innlent Vestfirðingar sjá fram á þrenn ný jarðgöng Innlent Finnst brotið á réttindum barnsins að orlofið sé skert Innlent Konan sem ekið var á er látin Innlent „Mér persónulega fannst þetta gríðarlega gaman“ Innlent Skora á Rúv að endurskoða þessa „misráðnu ákvörðun“ Innlent Hugrakkir drengir opnuðu sig í fréttum, breyttu kerfinu og skáluðu með Ingu Innlent Opna fyrir umferð um „fyrstu hraðbraut á Íslandi“ Innlent Fleiri fréttir Gjaldtaka af bílum sé hærri en fjárframlög til vegagerðar Allt að helmingur barna heima vegna veikinda Vestfirðingar sjá fram á þrenn ný jarðgöng Landhelgisgæslan eignast sjálfstýrða kafbáta „Mér persónulega fannst þetta gríðarlega gaman“ Hugrakkir drengir opnuðu sig í fréttum, breyttu kerfinu og skáluðu með Ingu Strætó ekið á hjólreiðamann í Laugardal Refsing milduð yfir burðardýri Finnst brotið á réttindum barnsins að orlofið sé skert Þjófar sendir úr landi Fær bara hálft fæðingarorlof og veik leikskólabörn Björn Dagbjartsson er látinn Hvetja til bólusetningar vegna inflúensufaraldurs Slapp ekki með typpamynd til þrettán ára Halda starfsleyfinu þrátt fyrir kröfur íbúa Opna fyrir umferð um „fyrstu hraðbraut á Íslandi“ Vill skoða úrsögn úr EES Leigubílstjóri og vinur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Skaftárhlaup enn yfirstandandi Helgi Valberg tekur við ritarastöðunni Stór áfangi Borgarlínu afgreiddur í skipulagsráði og á leið í kynningu Rannsókn lokið þrjátíu árum eftir snjóflóðið Kópavogur svarar: Ljósmagnið á skiltinu minnkað og þverun væntanleg Lífsýni úr öðrum manni nýju sönnunargögnin Ljóst að einhverjir dragi lög sín til baka Konan sem ekið var á er látin Styrkirnir ekki auglýstir: Segir Miðflokkinn haldinn hysteríu og ótta við þjóðina Skora á Rúv að endurskoða þessa „misráðnu ákvörðun“ Trampólín á flugi og vagn á hliðinni Tekist á um fangelsismálin og Útvarpsstjóri ræðir framtíð Söngvakeppninnar Sjá meira
Segir forsætisráðherra vinna skemmdarverk Kári Stefánsson segir það skemmdarverk af hálfu forsætisráðherra að leggja til breytingar á staðsetningu nýs Landspítala á þessari stundu. Undirskriftarsöfnun hans fyrir endurreisn heilbrigðiskerfisins er nú orðin sú stærsta í Íslandssögunni. 13. mars 2016 18:45
Kári um offituummælin: „Þessi skítur er á mína ábyrgð" Kári Stefánsson hefur beðið Sigmund Davíð Gunnlaugsson afsökunar á ummælum sem höfð voru eftir honum í gær þar sem hann líkti forsætisráðherra við tveggja ára gamlan offitusjúkling. 6. febrúar 2016 11:29
Kallar á vitundarvakningu í læknastétt Guðmundur Jóhannsson er bráða- og lyflæknir á bráðamóttöku Landspítalans. Hann segir auknar fjárveitingar til heilbrigðiskerfisins duga skammt ef mataræði Íslendinga tekur ekki breytingum. Koma megi í veg fyrir marga króníska lífsstílssjúkdóma sem eru dýrir fyrir samfélagið með breyttu mataræði. 18. mars 2016 07:00
Kári segir að Sigmundi verði „hent út á eyrunum við næstu kosningar“ Kári Stefánsson segir Sigmund Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, ekki hlusta á fólkið í landinu og vísar í orð hans á þingi í vikunni í óundirbúnum fyrirspurnartíma. 18. febrúar 2016 10:37
Sigmundur Davíð kallar Kára mannvin og miskunnsaman samfélagsrýni Ritdeilum forsætisráðherra og Kára Stefánssonar er hvergi nærri lokið. 27. janúar 2016 12:06
Hæstvirtur forsætisráðherra Opið bréf til Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar Sigmundur Davíð, það eru ekki nema nokkur ár síðan þú komst inn í íslensk stjórnmál eins og ferskur vindur á vordegi. Þú varst ungur og hugrakkur og horfðir yfir landið hvössum augum og sást hvað skipti máli og hvað ekki. Þú braust inn 18. mars 2016 07:00
Kári líkir Sigmundi Davíð við tveggja ára gamlan offitusjúkling "Why should I have a rivalry with this obese two-year-old little boy?“ 5. febrúar 2016 16:56
Kári skrifar opið bréf til Sigmundar Davíðs: Segir forsætisráðherra í stríði við samstarfsflokkinn Kári Stefánsson fer um víðan völl í opnu bréfi til Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra. 18. mars 2016 06:45
Kári slær Íslandsmetið í undirskriftasöfnun Undirskriftasöfnun Kára Stefánssonar, forstjóra Íslenskar erfðagreiningar, á vefsíðunni Endurreisn.is er orðin sú fjölmennasta í Íslandssögunni. 12. mars 2016 15:13
Kári segir Sigmund fýldan út í allt og alla: „Þá sérstaklega þjóðina sem hann á að stjórna“ Segir forsætisráðherra eiga að taka fátækari þjóðir sér til fyrirmyndar í stað þess að lítilsvirða þær. 26. janúar 2016 15:07