Telur Fjólu sniðgengna af fáfróðum í ráðuneyti Kristjana Björg Guðbrandsdóttir skrifar 11. mars 2016 07:00 Snædís Rán Hjartardóttir segist enn ekki hafa orðið vör við viðeigandi breytingar eftir sigur gegn ríkinu í dómsmáli um túlkaþjónustu. Mynd/Stöð 2
Snædís Rán Hjartardóttir segist enn bíða eftir breytingum eftir að hún vann mál sitt gegn ríkinu sem hún höfðaði vegna þess að Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra synjaði henni um endurgjaldslausa túlkaþjónustu. Þar að auki segir Snædís að félag fólks með samþætta sjón - og heyrnarskerðingu, Fjóla, hafi verið sniðgengið af ráðuneytinu við drög að breytingum á reglugerð um miðstöðina. „Síðan dómurinn féll hef ég verið að bíða eftir breytingum en þær láta ekki sjá sig, að vísu eru til drög að breytingum á reglugerð um Samskiptamiðstöð fyrir heyrnalausa og heyrnarskerta en þau virðast ekki taka á grunnvandanum og voru auk þess ekki samin í samráði við hagsmunafélagið mitt,“ segir Snædís. Að sögn Snædísar fengu þau ekki að vita af málinu fyrr en frestur til að senda inn umsagnir var runninn út. Þá hafi upplýsingarnar komið frá Félagi heyrnarlausra en ekki ráðuneytinu sjálfu. „Við fengum samt á endanum að segja eitthvað um þetta. Af hverju gleymdist að láta Fjólu vita þrátt fyrir að um helsta hagsmunafélag fólks með samþætta sjón-og heyrnarskerðingu sé að ræða? Þessi fáfræði sýnir fram á þörfina fyrir auknum skilningi á sérstöðu og hagsmunum þessa fólks,“ segir Snædís Rán. Ásamt systur sinni, Áslaugu Ýri, kvikmyndagerðarkonunni Söndru Helgadóttur og Guðnýju Katrínu Einarsdóttur, ráðgjafa hjá Fjólu, safnar Snædís fyrir gerð heimildarmyndar á Karolina Fund. Með myndinni ætla þær að fræða bæði stjórnvöld og almenning um stöðu fólks með þessa tegund fötlunar. Guðný Katrín segist upplifa í sínu starfi almenna vanþekkingu á málefnum fólks með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu. „Það ríkir líka vanþekking hjá ríkinu gagnvart því mikilvæga starfi sem fer fram hjá Fjólu. Til dæmis lækkaði árlegur styrkur ríkisins til félagsins úr 1.500.000 í fyrra, niður í 395.000 krónur í ár. Fyrir lítið félag er það mikill niðurskurður,“ segir Guðný Katrín Einarsdóttir.
Mest lesið Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fleiri fréttir „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Sjá meira