Fjölmargir látnir í hryðjuverkaárás í Jakarta Atli Ísleifsson skrifar 14. janúar 2016 07:07 Lögregla telur að fjórtán manns hið minnsta hafi tekið þátt í árásinni. Vísir/AFP
Margar sprengjur hafa sprungið í Jakarta höfuðborg Indónesíu í nótt og skothvellir hafa einnig heyrst. Að minnsta kosti sjö hafa fallið í árásunum sem meðal hafa verið gerðar í Sarinah verslunarmiðstöðinni, nálægt forsetahöll landsins, og við skrifstofur Sameinuðu þjóðanna. Fimm hinna látnu eru árásarmenn. Guardian greinir frá því að fjórtán árásarmenn á vélhjólum, vopnaðir handsprengjum og skotvopnum, hafi staðið fyrir árásunum. Sjónarvottar segir í samtali við AP að þrír menn hafi sprengt sjálfa sig í loft upp inni á Starbucks-stað og að tveir vopnaðir menn hafi ráðist inn á nálæga lögreglustöð. Einn lögreglumaður er sagður hafa fallið. Joko Widodo, forseti Indónesíu, segir ljóst að um hryðjuverkaárás sé að ræða. Segir hann að lögregluyfirvöld hafi náð tökum á ástandinu, en að óljóst sé hvort fleiri árásarmenn séu á flótta. Hvatti hann íbúa höfuðborgarinnar að halda ró sinni. Mörg hundruð lögreglumenn voru á götum borgarinnar og kom nokkrum sinnum til skotbardaga en þó er enn ekki vitað hverjir standa að baki árásunum. Indónesía hefur þó verið á hæsta viðbúnaðarstigi um nokkurn tíma vegna hótana frá ISIS samtökunum um að gera árásir í landinu, en um tvö hundruð Indónesar eru taldir hafa farið til Sýrlands til að ganga í samtökin. Al Jazeera greinir frá því að hollenskur starfsmaður Sameinuðu þjóðanna sé í hópi hinna látnu.Here's the moment militants launched an attack on Indonesia's capital, killing six people: https://t.co/PPDgmG1YqU https://t.co/8KSJwZkqDi— Sky News (@SkyNews) January 14, 2016 The latest pictures appear to show what is believed to be one of the #Jakarta attackers: https://t.co/wwSl8YOUQ7 https://t.co/XoRc1bO3pt— Sky News (@SkyNews) January 14, 2016
Mest lesið Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Héldu námskeið um heiðursofbeldi Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Fleiri fréttir Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Sjá meira