Rifrildi háskólanemanna snerist um þriðja aðila Snærós Sindradóttir skrifar 9. mars 2016 07:00 Málið er til rannsóknar hja lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. vísir/gva
Manninum sem stunginn var í bakið aðfaranótt sunnudags er enn haldið sofandi í öndunarvél. Hann er fæddur árið 1989 en það er árásarmaður hans líka. Maðurinn sem situr í gæsluvarðhaldi vegna málsins hefur játað verknaðinn að sögn Árna Þórs Sigmundssonar, yfirmanns ofbeldisdeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þá er hnífurinn sem beitt var í árásinni í vörslu lögreglu en Árni Þór vill ekki gefa upp hvar eða hvenær hann fannst. Öll lykilvitni í málinu hafa verið yfirheyrð en gæsluvarðhald yfir árásarmanninum rennur út í dag. Árni segir að ákvörðun um hvort að þess verði krafist að hann verði áfram í haldi verði tekin núna í morgun. Mennirnir eru báðir nemendur við Háskóla Íslands. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins snerist rifrildi mannanna um þriðja aðila. Hvorugur hefur komið við sögu lögreglu áður. Málavextir eru þeir að aðfaranótt sunnudags var lögregla kölluð að stúdentagörðum við Sæmundargötu í Vesturbæ Reykjavíkur. Þá hafði annar mannanna stungið hinn í bakið með hníf. Nokkur vitni voru að árásinni en enginn annar er grunaður um þátttöku í henni. Árásarmaðurinn hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til miðvikudags.
Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Sjá meira