Eru staðlausir stafir betri en rök? Jakob S. Jónsson skrifar 22. júní 2016 07:00 Ritari stjórnar Félags leiðsögumanna, Bryndís Kristjánsdóttir, virðir mig loksins svars vegna gagnrýni minnar á stjórn félagsins og ábendingar um ýmsa misbresti sem stjórnin hefur sýnt af sér í starfi – ekki síst framkvæmd aðalfundar ársins 2016. Hún er þó ekki að verja eða sverja af sér þá framkvæmd, en ræðst með ýmsum fullyrðingum að mér og segir mig vilja að „leiðsögumenntun ... verði gjaldfelld“ og að „„magn leiðsögumanna“ hljóti að leiða til hærri launa“. Hún segir mig ennfremur „gefa lítið fyrir gæðin og gott orðspor“. Elsta bragðið í mælskulist er að gera viðmælendum sínum upp skoðanir. Bryndís hefur illa lesið greinar mínar, sem birst hafa í Fréttablaðinu til þessa (25. febrúar, 17. mars, 6. apríl, 4. maí og 14. júní). Þar hef ég sagt: Stjórn félags leiðsögumanna skiptir leiðsögumönnum í tvo hópa eftir því hvort stjórnin viðurkenni menntun þeirra eða ekki. Stjórn FL fullyrðir að þessi viðurkenning byggi á mati menntamálaráðuneytis, en í greinum mínum kemur fram með rökstuðningi að svo er ekki. Þetta „mat ráðuneytisins“ er einfaldlega ekki til. Það er hugarfóstur stjórnar FL. Bryndís snýr út úr orðum mínum og segir mig telja „magn leiðsögumanna“ ofar „gæðum“ og „góðu orðspori“. Ekki skýrir hún hvað átt er við með þessum orðum, en aldrei hef ég hampað magni fyrir gæði eins og hver sér sem les mínar greinar. Hins vegar er samstaða leiðsögumanna mikilvæg þegar um ræðir að bæta kjörin. Það hef ég gert að umtalsefni. Félag leiðsögumanna á að vera eitt og óskipt, opið öllum starfandi leiðsögumönnum, ekki síst til að efla samstöðu stéttarinnar. Annað verður heldur ekki af orðum mínum skilið. Tvískiptingin í svonefnt fagfélag og stéttarfélag hefur orðið til að sundra leiðsögumönnum. Það er miður, því málum leiðsögumanna má þoka áleiðis ef þeir standa saman innan síns félags á jafnréttisgrundvelli – til dæmis löggildingu starfsheitis og lögvernd starfsins, sem hefur verið eitt helsta baráttumál félagsins svo áratugum skiptir. Bryndís Kristjánsdóttir á sem ritari stéttarfélags að leggja metnað í að sýna að hún skilji það. Í grein Bryndísar er ég ekki nefndur með nafni, en kallaður ýmist „einstaklingur“, „félagsmaður“ eða „sá sem hefur verið að gagnrýna FL“. Slíkt eru eineltistilburðir og engum til sóma. Bryndís hefði átt að nefna mig með nafni fyrst hún vildi tala við mig opinberlega. Það hefði verið kurteisi við Fréttablaðið og lesendur þess.Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Halldór 29.08.26 Halldór Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson Skoðun Skoðun Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar