Jökulhlaup hafið í Múlakvísl Gissur Sigurðsson skrifar 22. júní 2016 11:14 Múlakvísl er á Suðurlandi og hleypur nú leysingavatn úr Kötlujökli í fljótið. vísir/grafík/tótla
Hugsanlegt er að jökulhlaupið, sem hófst í Múlakvísl í gær, þegar rafleiðni í vatninu fór ört vaxandi og rennslið fór líka að aukast, koðni niður, en vísindamenn fylgjast grannd með framvindu mála. Þegar vísindamenn mátu stöðuna í gær töldu þeir að hlaupvatn væri farið að renna úr einum katlanna á vatnasvæði Kötlujökuls en að ekki væri hætta á tjóni að svo stöddu. Að sögn Bryndísar Gísladóttur, náttúruvársérfræðings á Veðurstofu Íslands hefur rafleiðnin aftur minnkað í nótt og vatnshæðin líka. Því er ekki mikið í gangi eins og er. Aðspurð hvort að þetta geti verið forleikurinn að alvöru hlaupi segir Bryndís svo geta verið. „En eins og er erum við ekki að sjá boð um neitt meira en það er auðvitað vel fylgst með þessu öllu saman. Þetta er í raun bara leysingavatn sem hefur verið að koma úr Kötlujökli, einum kötlunum þar, og þetta er í raun bara venjulegt á þessum árstíma. Svona yfir sumartímann frá júní til september er það þetta sem gerist á þessum slóðum. Þetta er leysingavatn sem hefur safnast upp yfir vetrartímann og er bara að losna frá.“ Bryndís segir vísindamenn Veðurstofunnar ekki hafa sérstakar áhyggjur af hlaupinu eins og staðan er núna. „Það hefur ekki verið neinn órói og það er engin tilkynning búin að berast til okkar um brennisteinslykt eða neitt slíkt.“
Mest lesið Sextán ára fékk greitt fyrir að færa Epstein stúlkur Erlent Hljóti að vera komið að því að skoða öryggisgæslu við skóla Innlent „Þetta er bara ljótt“ Innlent Milljónir til almannatengla og átta sinnum meira en í fyrra Innlent Systir og amma drengs í meðferð létust í Suður-Afríku Innlent „Ég vil ekki nokkurn tímann sjá neitt svona aftur“ Innlent Eyjólfur í orlof og Inga þrefaldur ráðherra Innlent „En hver sagði að þetta ætti að vera auðvelt?“ Innlent Ljósmyndir horfnar úr Epstein-skjölunum, þar á meðal ein af Trump Erlent Sex hundruð miðar á vettvangi morðsins: „Fokking hálfvita fífl bæði tvö!!!!“ Innlent Fleiri fréttir „Ég vil ekki nokkurn tímann sjá neitt svona aftur“ Gyðingar á Íslandi upplifa aukinn ótta Ferðaþjónusta blómstrar í uppsveitum Árnessýslu „Þetta er bara ljótt“ Hljóti að vera komið að því að skoða öryggisgæslu við skóla Ætlar að skýra hvenær rjúfa megi þagnarskyldu Þagnarskylda heilbrigðisstarfsfólks og öryggisgæsla við grunnskóla Eyjólfur í orlof og Inga þrefaldur ráðherra Vegagerðin segir flóðin í Vík fyrirséð Fjölmiðlar, bókmenntir og hægrimennska á Sprengisandi „En hver sagði að þetta ætti að vera auðvelt?“ Milljónir til almannatengla og átta sinnum meira en í fyrra Grunuð um að koma til landsins til að brjóta á öldruðum Leggja hald á skip á alþjóðahafsvæði undan ströndum Venesúela Bindur vonir við Vor til vinstri Systir og amma drengs í meðferð létust í Suður-Afríku „Við erum pottþétt að koma út í mínus, hversu miklum vitum við ekki“ „Þetta er alveg ásættanlegur samningur“ Deildi nöfnum skjólstæðinga á Instagram Íslendingar þægileg fórnarlömb fyrir vasaþjófa „Að öllu óbreyttu mun þjóðvegurinn fara í sundur“ Vonbrigði í Vík og rýnt í Epstein-skjölin Morgundagurinn sá stysti á árinu Langtímaleigan 23 þúsund krónum dýrari á ári Grenjandi rigning og hífandi rok á aðfangadag Reyndi að komast inn á lögreglustöð með fíkniefni Svona á að raða í uppþvottavélina „Verður vonandi til að styrkja íslensku einkareknu miðlana“ Talinn hafa komið til landsins til að stela Snorkstelpan snýr aftur eftir ágreining um höfundarrétt Sjá meira