Grípa inn í þegar ung börn deila klámefni sín á milli Snærós Sindradóttir skrifar 22. desember 2016 07:00 Flest börn og unglingar hafa óheftan aðgang að internetinu í gegnum snjallsímann allan sólarhringinn. Í gegnum símann er greiður aðgangur að klámi. NordicPhotos/GETTY „
Við vitum af því að börn skoða klám. Strákar skoða frekar klám og yngri krakkar eru líklegri til að lenda inni á klámsíðum óvart heldur en eldri krakkarnir,“ segir Guðberg K. Jónsson, verkefnastjóri SAFT, sem er vakningarátak um örugga tölvunotkun barna og unglinga. Í Fréttablaðinu í gær var greint frá því að fjórtán ára börn hefðu þurft að leita sálfræðihjálpar vegna klámfíknar og að börn væru sífellt að verða yngri þegar þau sjá klám í fyrsta skipti. „Við höfum fengið fyrirspurnir frá foreldrum um hvernig þau geta lokað fyrir efnið. Það er lausnin sem öllum dettur fyrst í hug. En svo höfum við líka fengið beiðni um fræðslu frá skólum og foreldrum barna þar sem er sérstaklega farið yfir þetta. Það yngsta er hjá þriðja og fjórða bekk þar sem krakkar hafa hafa verið að deila hlekkjum á klámefni,“ segir Guðberg.Guðberg K Jónsson, verkefnastjóri SAFTSAFT hefur gert kannanir á meðal foreldra og barna en nýjustu niðurstöður slíkrar könnunar eru frá 2013. Athygli vekur að í niðurstöðum könnunarinnar segja tæp tíu prósent foreldra að barn þeirra hafi séð klám á síðastliðnum tólf mánuðum. Í sömu könnun sögðust 29 prósent barna hafa séð klámefni á síðustu tólf mánuðum. Aukin notkun snjallsíma hjá börnum gæti haft enn frekari áhrif á þessar tölur þegar nýjar niðurstöður verða kynntar. Guðberg segir að hægt sé að nota ýmis forrit til að koma í veg fyrir að börn rambi óvart á klámsíður. „En unglingar munu finna leiðir fram hjá þessum vörnum. Það eru til leiðbeiningar á netinu um það hvernig farið er fram hjá þessu. Ég held meira að segja að þessar leiðbeiningar séu til á íslensku.“Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir, upplýsingafulltrúi SímansHann segir að fræðslan skipti sköpum frekar en að loka á aðgengi að síðunum. „Börn þurfa snemma að vera meðvituð um að flest af því klámefni sem þau rekast á á netinu er ólíklega að endurspegla raunverulegt kynlíf. Það getur gefið þeim óraunhæfar væntingar um hvað kynlíf er.“ Símafyrirtækin bjóða upp á netvara sem hamlar aðgengi heimilisins að óæskilegu efni. Netvarinn gengur aftur á móti ekki ef símtæki barnanna eru aðeins tengd 4G neti í stað þráðlauss internets. „Fjöldi appa getur hjálpað foreldrum að vernda börnin gegn óæskilegu efni og við mælum með því að foreldrarnir stjórni ferðinni sjálfir. Vörnin er best í tækinu sjálfu og má nefna appið Save Family frá McAfee. Það er frítt. Munum samt að svona varnir eru ekki alltaf hundrað prósent en þær hjálpa,“ segir Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir, upplýsingafulltrúi Símans. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Fleiri fréttir „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Sjá meira