Á hraðri uppleið í dansbransanum Guðrún Jóna Stefánsdóttir skrifar 24. október 2016 09:29 María Höskuldsdóttir vekur athygli fyrir danshæfileika sína. Stella „
Það var mjög erfitt að missa mig ekki, ég bjóst aldrei við því að KK Harris, einn af bestu dönsurum í heimi og fyrirmyndin mín, myndi finnast ég góður dansari,“ segir María Höskuldsdóttir, þrettán ára dansari hjá Dansstúdíó World Class. María tók nýverið þátt í stærsta dansviðburði sem haldinn hefur verið á Íslandi, DWC Dance Camp, þar sem tveir af þekktustu dönsurunum í Los Angeles, þau KK Harris og José Hollywood, mættu til landsins í þeim tilgangi að kenna íslenskum dönsurum.María ásamt fyrirmynd sinni, KK Harris.StellaKK og Hollywood hafa unnið með listamönnum á borð við Beyoncé, Rihönnu, Nicki Minaj, Usher, Britney Spears og Jennifer Lopez, en dansararnir áttu það sameiginlegt að taka sérstaklega eftir Maríu af 200 dönsurum sem sóttu viðburðinn. Henni var hrósað í hástert í miðjum danstíma. „Ég hugsaði bara allan tímann hversu geggjað það er að fá að fara í tíma hjá þeim hérna á Íslandi. Þetta var alveg frábært og ég ætlaði ekki að trúa því þegar hún sagðist bara hafa tekið eftir mér af öllum dönsurunum sem voru á svæðinu. Inni í mér var ég öskrandi af gleði en ég reyndi samt að halda kúlinu,“ segir María og bætir við að hún stefni klárlega á að feta í fótspor stjarnanna í framtíðinni. María er meðlimur í unglingadanshóp skólans og er óhætt að segja að stúlkan sé á hraðri uppleið í dansbransanum.Eydís Jansen og María eru miklar vinkonur og þykja bera af í dansinum. Þær skipa ME Crew og ætla að taka þátt í DANCEOFF Dansbikar 12. nóvember.„Ég er ótrúlega heppin að fá tækifæri til þess að vera í unglingadanshóp skólans, ég fæ ótal tækifæri til að koma fram og núna nýlega dansaði ég í nýju myndbandi fyrir Blissful með Svölu Björgvins og fram undan eru svo tvö önnur myndbönd, annars vegar fyrir fatamerkið Inklaw og svo fyrir íslenskan tónlistarmann sem ég má því miður ekki tala um strax,“ segir María spennt. Stella Rósenkranz, deildarstjóri Dansstúdíó World Class, segir að með því að vera með danshópa í skólanum gefist nemendum tækifæri til að vinna sem atvinnudansarar og fái þannig reynslu og styrk til þess að þroskast í faginu. „Eftir að ég fór að dansa mikið í tónlistarmyndböndum hef ég tekið eftir aukinni athygli, það er sagt hæ við mig hér og þar, þó ég viti ekki endilega alltaf hver viðkomandi er. Ég segi bara hæ til baka,“ segir hún og bætir við að sér þyki bara jákvætt að fólk taki eftir henni sem dansara. En hverjar eru helstu fyrirmyndir þínar í dansheiminum? „Ætli fyrirmyndin mín í dansi sé ekki bara sjálf KK Harris. Svo eru Ian Eastwood, José Hollywood og Lia Kim líka geggjuð, en hér heima er það klárlega Stella Rósenkranz, hún kenndi mér að dansa og ég er búin að taka svona miklum framförum eftir að ég fór að læra hjá henni,“ segir María.Hér fyrir neðan má myndband, sem danshópur Dansstúdíó World Class, gerði á dögunum.
Mest lesið Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei Lífið Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Lífið IceGuys boða sína síðustu tónleika: Sonur Arons Can gerði allt vitlaust Tónlist „Hefði ekki getað gengið betur“ Lífið Innipúki er ekki það sama og fýlupúki Lífið Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Lífið „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Lífið Sló pabba út með að kasta sér yfir línuna Lífið Big Pussy er látinn Lífið „Hélt ég myndi aldrei upplifa ást sem þessa“ Lífið Fleiri fréttir „Hefði ekki getað gengið betur“ Sló pabba út með að kasta sér yfir línuna Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei Innipúki er ekki það sama og fýlupúki „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Big Pussy er látinn Fréttatía vikunnar: Vasaþjófar, KFC og morðhótanir Fiðrildi og flugeldar í maganum í Herjólfsdal Selur aflátsbréf fyrir forsjálustu syndgara helgarinnar Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Þjóðhátíð sett í blíðviðri í Eyjum Hættur í Jesus Christ Superstar eftir útgáfu lags til stuðnings Ísrael Ískaldur töffari, skapstór snillingur og afkastamikill vinnuþjarkur Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Sam Smith trúlofað Halla Hrund og uglurnar þrjár Útför Megasar Gerði sátt við aðstoðarkonuna sem sakaði hann um nauðgun „Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ Gladiator kveikti neistann við brennuna og úr varð ódauðlegt þjóðhátíðarlag Kíkti í kaffi til kanslarans Hvað veistu um… skák? „Ég hef aldrei brotið kynferðislega á neinum á ævi minni“ Madison Beer trúlofast NFL-kappa Sonurinn fékk nafnið Isaiah Ellason Fox Glen Hansard látinn eftir mótorhjólaslys Kavinsky fannst látinn á heimili sínu Fjórar konur ásaka Leto um refsiverða háttsemi í nýrri heimildarmynd Sjá meira