Segir lítinn brag að gagnrýni Frosta Una Sighvatsdóttir skrifar 17. janúar 2016 19:48
Alþingi veitti fjármálaráðuneytinu ríflega tveggja milljarða króna heimild á fjáraukalögum til kaupa á hlut í Innviðafjárfestingabanka Asíu. Innan stjórnarliðsins ríkir hinsvegar ekki einhugur um þessa ákvörðun. Bjarni Benediktsson er nú um helgina viðstaddur stofnfund bankans í Kína eins og fréttastofa greindi frá í en Frosti Sigurjónsson formaður efnahags- og viðskiptanefndar gagnrýndi för ráðherrans og þá ákvörðun að skuldbinda ríkissjóð þótt ávinningur Íslands sé mjög óljós. Varaformaður efnahags- og viðskiptanefndar er ekki á sama máli. Hann segir að bankinn sé hluti af þróunarsamvinnu vestrænna ríkja í Asíu og það auki möguleika íslenskra fyrirtækja að hasla sér völl á svæðinu.Mikið fyrir lítið „Þetta er lág fjárhæð sem komin er og verður kannski 460 milljónir á næstu fimm árum. Þótt skuldbindingin geti verið allt að 2,3 milljarðar þá er ólíklegt að það verði meira en þessar 460 milljónir, þannig að það getur verið til mikils að vinna fyrir lítinn pening." Alþingi hefur ekki afgreitt þingsályktunartillögu um fullgildingu stofnsamnings bankans, en Brynjar segir það í raun bara formsatriði enda hafi atriði hans legið fyrir þegar fjárheimildin var samþykkt, og þar við sitji. „Þessar samþykktir lágu fyrir þegar fjáraukalögin voru samþykkt, þannig að ef menn vildu fara í einhverja umræðu út af því þá gátu menn gert það. En það var ekki gert og í raun og veru óþarft að vera með þessa þingsályktunartillögu yfir höfuð. Ráðherra gat bara gert þetta með hliðsjón af þeim skuldbindingum sem Ísland samþykkti í þessu samhengi." Stjórnarliðar eigi ekki að greiða ekki atkvæði gegn meirihlutanum Hann býst við að þessi ágreiningur í stjórnarliðinu verði auðleystur en gagnrýnir Frosta fyrir framgöngu hans. „Við erum auðvitað að ákveða fjárútgjöld á hverju ári í hin og þessi málefni sem ekki allir eru sammála um. Ég tel hinsvegar mikilvægt að þeir sem ætla að standa að stjórnarmeirihluta að þeir greiði atkvæði með eða sitji ekki hjá, eða greiði atkvæði á móti einstökum útgjaldaliðum. Mér finnst ekki mikill bragur á því og ekki mikill bragur að því að gera það á fésbókarsíðu í stað þess að ræða bara við ráðherra sjálfan." Hann bætir við að mönnum sé vissulega frjálst að hafa skoðanir á öllu. „Ég hef skoðanir á ýmsu í útgjöldum ríkisins sem ég er ekki sáttur við, en ég stend að þessum stjórnarmeirihluta og greiði ekki atkvæði gegn einstaka liðum þó ég sé ekki sáttur við þá.“
Tengdar fréttir Frosti segir óvíst hvort fjármálaráðherra eigi nokkuð erindi til Kína Formaður efnahags-og viðskiptanefndar segir erfitt að sjá að aðild Íslands að Innviðafjárfestingabanka Asíu muni hafa nokkuð að segja fyrir íslenskt atvinnulíf. 16. janúar 2016 12:56 Ekki góð vinnubrögð að skuldbinda Ísland án umræðu Katrín Jakobsdóttir gagnrýnir að 2,3 milljarða skuldbinding vegna kaupa á hlut Íslands í asískum fjárfestingabanka hafi verið afgreidd án þess að Alþingi hafi rætt aðildina efnislega. 16. janúar 2016 20:00 Mest lesið Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Erlent „Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ Innlent Hefja athugun á fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar Innlent Segir ásakanir flugvirkja „furðulegar“ Innlent Munu ekki samþykkja frekari hækkun launa Innlent Gómaður með gríðarlegt magn af barnaklámi Innlent Íslensk ungmenni drekka minnst af orkudrykkjum Innlent Barnaníðingur fékk ekki annað leyfi hjá Hæstarétti Innlent Stefnir í aflýsingar á öllu morgunflugi frá Keflavík og Reykjavík Innlent Kristján hótar lögsókn verði bann að lögum Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Kynna nýtt áhættumat fyrir Grindavík Barn stakk sig á sprautunál á skólalóðinni „Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ Gómaður með gríðarlegt magn af barnaklámi Nýtt áhættumat: Bjóða Grindvíkingum að kaupa húsin til baka Flestir félagar vilji frekari kjarabætur vegna forsendubrests Kristján hótar lögsókn verði bann að lögum Hefja athugun á fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar Stefnir í aflýsingar á öllu morgunflugi frá Keflavík og Reykjavík Munu ekki samþykkja frekari hækkun launa Árleg framlög jukust um 286 milljónir en Sinfónían aftur rekin með tapi Segir ásakanir flugvirkja „furðulegar“ Neitar að tjá sig um hvort lög verði sett á verkfall Ekkert í afkomu fyrirtækja sem sýni virðingu fyrir kjarasamningum Þokast æ fjær loftslagsskuldbindingum Íslands Leita lausnar áður en verkfall hefst á miðnætti Boða stórsókn í skóla- og menntamálum í Reykjavík Bein útsending: Kynnir nýjar losunartölur Nauðgaði sofandi sambýliskonu sinni og tók myndir Hagsmunir Íslands að efla Sameinuðu þjóðirnar Íslensk ungmenni drekka minnst af orkudrykkjum „Skólinn okkar er alltof lítill“ Barnaníðingur fékk ekki annað leyfi hjá Hæstarétti Ljóst hvar hnífurinn stendur í kúnni Bílastæði við Stúdentagarða verða einkastæði Verði að bregðast við „bullandi launarýrnun“ Flugvirkjar eigi að sýna vilja sinn í verki Lárus Welding á endastöð hjá MDE Segja Icelandair hafa hafnað boði um frestun verkfalls Bifreið fjarlægð með krana eftir að eldur kviknaði Sjá meira
Frosti segir óvíst hvort fjármálaráðherra eigi nokkuð erindi til Kína Formaður efnahags-og viðskiptanefndar segir erfitt að sjá að aðild Íslands að Innviðafjárfestingabanka Asíu muni hafa nokkuð að segja fyrir íslenskt atvinnulíf. 16. janúar 2016 12:56
Ekki góð vinnubrögð að skuldbinda Ísland án umræðu Katrín Jakobsdóttir gagnrýnir að 2,3 milljarða skuldbinding vegna kaupa á hlut Íslands í asískum fjárfestingabanka hafi verið afgreidd án þess að Alþingi hafi rætt aðildina efnislega. 16. janúar 2016 20:00