Kirkjan hyggur á endurheimt votlendis Svavar Hávarðsson skrifar 19. janúar 2016 06:00 Ef allt gengur upp mun þjóðkirkjan hefja endurheimt votlendis í Skálholti. fréttablaðið/vilhelm
Þjóðkirkjan hefur markað sér stefnu um að verða virkur þátttakandi í baráttunni gegn hnattrænni hlýnun vegna losunar gróðurhúsalofttegunda. Ákveðið hefur verið að endurheimta votlendi á kirkjujörðum og fyrst í Skálholti. Í áramótaávarpi sínu kallaði biskup Íslands, Agnes M. Sigurðardóttir, eftir að allir sýndu ábyrgð í verki er varðar umhverfismál og að þjóðkirkjan vilji leggja sitt af mörkum. Vísaði hún til loftslagsráðstefnunnar í París í desember þar sem samkomulag náðist á milli 195 þjóða. Með samkomulaginu á meðal annars að tryggja að hlýnun verði innan við tvær gráður miðað við tímann fyrir iðnbyltingu.Agnes M. Sigurðardóttir„Ákveðið hefur verið að endurheimta votlendi í Skálholti og til skoðunar er að slíkt eigi sér stað á fleiri kirkjujörðum. Endurheimt votlendis er mikilvægt skref í átt að breytingu á kolefnisbúskapnum. Mýrar hafa að geyma óhemju magn af kolefni og allar breytingar í kolefnisbúskap þessara vistkerfa eru því mikilvægar á hnattræna vísu. Hingað til höfum við einblínt á mengun frá farartækjum og slæma umgengni um náttúruna, sem er vel. Það hefur komið mörgum á óvart að endurheimt votlendis hefði svo mikil áhrif sem raun ber vitni í átt til byggilegri heims,“ sagði Agnes. Séra Halldór Reynisson, verkefnisstjóri í Skálholti, segir að allar jarðir sem kirkjan á komi til greina með endurheimt votlendis en verkefnið sé á undirbúningsstigi. Fyrst þurfi að fara fram mat á aðstæðum á hverjum stað í samráði við ábúendur. Að stofni til sé um að ræða prestssetursjarðir sem enn eru í eigu kirkjunnar. Þar ber að líta til þess að með svokölluðu kirkjujarðasamkomulagi frá 1998 fóru flestar jarðir kirkjunnar til ríkisins, en þær voru nokkur hundruð. Í eigu kirkjunnar eru því nokkrir tugir jarða í dag, og hafa verið nefndar jarðir eins og Oddi og Reynivellir í Kjós. Árið 2014 voru setnar prestssetursjarðir kirkjunnar 26 alls. Auk þess á kirkjan átta prestssetursjarðir sem ekki eru setnar eða í umsjá presta: Mosfell í Mosfellsbæ, Reykhóla, Vatnsfjörð, Árnes, Mælifell, Háls, Desjarmýri og Mosfell í Grímsnesi. Um jörðina Skálholt gilda sérstakar reglur. Ríkið hyggst hefjast handa í sumarEitt 16 verkefna í sóknaráætlun stjórnvalda snýr sérstaklega að endurheimt votlendis. Sett verður á fót verkefni um endurheimt votlendis. Ráðist verður í fyrstu verkefnin undir þeim hatti sumarið 2016 á grunni vinnu starfshóps, sem hefur kortlagt vænleg svæði til endurheimtar, m.a. á þjóðlendum. Áfram verður unnið að kortlagningu framræstra svæða sem koma til greina við endurheimt votlendis í samvinnu við bændur, landeigendur og náttúruverndarsamtök.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Innlent Segja engan fund á dagskrá Erlent Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Erlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Fleiri fréttir Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Sjá meira