Þetta voru vinsælustu nöfnin á Íslandi árið 2015 Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 20. desember 2016 09:53 Aron og Emilía voru vinsælustu nöfnin í fyrra. vísir/getty
Aron var vinsælasta eiginnafn nýfæddra íslenskra drengja í fyrra, árið 2015, en þar á eftir komu Alexander og Viktor. Emilía var vinsælasta stúlkunafnið en í 2. og 3. sæti voru nöfnin Sara og Ísabella. Þór var langvinsælasta annað eiginafnið hjá drengjum en þar á eftir komu Freyr og Hrafn. Rós var vinsælasta annað eiginnafnið hjá stúlkum en á eftir því komu nöfnin Ósk og María. Frá þessu er greint í frétt á vef Hagstofunnar en þar kemur fram að þegar litið er á allan mannfjöldann í ársbyrjun þessa árs þá voru 10 algengustu einnöfnin og fyrstu eiginnöfnin þau sömu og árið 2011. Hjá körlum var Jón algengasta nafnið, þá Sigurður og svo Guðmundur. Af kvenmannsnöfnum er Guðrún algengast, þá Anna og svo Kristín. Tíu algengustu karlmannsnöfnin hafa verið þau sömu frá 2011.Jón Þór og Anna María algengustu samsetningarnar Þá kemur jafnframt fram að flestir landsmenn bera fleiri en eitt nafn og voru í byrjun ársins þrjár algengustu samsetningarnar hjá körlum Jón Þór, Gunnar Þór og Jón Ingi. Þetta voru einnig algengustu tvínefnin fimm árum fyrr. Hjá konum voru þrjár algengustu samsetningarnar Anna María, Anna Margrét og Anna Kristín. Þetta voru líka þrjú algengustu tvínefnin árið 2011. Afmælisdagar dreifast svo ekki jafnt yfir árið en algengara er að börn fæðist að sumri og á hausti en yfir vetrarmánuðina, það er frá október og fram í mars. Alls eru 51,5% allra afmælisdaga á tímabilinu frá apríl til september. Í upphafi árs 2016 gátu flestir átt von á því að halda upp á afmælisdaginn 27. ágúst, alls 1.041 einstaklingar. Fæstir áttu afmæli á hlaupársdag, 29. febrúar, eða 211 manns. Næst kemur jóladagur (683) og aðfangadagur (716).
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Fleiri fréttir „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Sjá meira