Kettir drepast á dularfullan hátt 10. desember 2016 07:15 Svo virðist sem einhver geri sér að leik að eitra fyrir köttum í Hafnarfirði. vísir/getty
Undanfarna viku hafa þrír kettir verið lagðir inn á Dýraspítalann í Garðabæ. „Enginn kattanna lifði því miður af,“ segir Hanna M. Arnórsdóttir dýralæknir. Starfsmenn dýraspítalans grunar að frostlagareitrun hafi dregið kettina til dauða. Vefjasýni úr einum kattanna hafa verið send til rannsóknar til að fá úr því skorið hvernig dauðanum bar að garði. Kettirnir þrír áttu það allir sameiginlegt að búa nærri Hellisgerði í Hafnarfirði. Það gefur til kynna að mögulega hafi verið eitrað fyrir köttunum. Frostlögur er baneitraður köttum. Starfsmenn dýraspítalans segja að koma þurfi ketti sem neytt hefur frostlagar á dýraspítala strax. Líði meira en þrír tímar frá neyslu eru litlar líkur á því að hægt sé að bjarga kettinum. Eitrunin er köttum mjög kvalafull. Kötturinn kastar ítrekað upp og missir alla matarlyst. Hann verður mjög máttfarinn og fellur loks í dá áður en hann drepst. Á síðustu árum hafa fjölmargir kettir dáið með grunsamlegum hætti. Í fyrrasumar lék grunur á að eitrað hefði verið fyrir sex köttum í Hveragerði með frostlegi. Nærri húsi eiganda eins kattarins sem drapst fannst blátt fiskflak. Nú í sumar fundust tveir kettir til viðbótar í Hveragerði sem grunur er um að hafi verið eitrað fyrir. Sömu sögu er að segja frá Sandgerði. Þar hafa um tíu kettir drepist á síðustu tveimur árum. Leiki grunur á að dýr hafi verið beitt illri meðferð ber skylda til að tilkynna það til Umhverfisstofnunar, héraðsdýralæknis eða lögreglu samkvæmt dýraverndarlögum. Starfsmenn dýraspítalans vonast til þess að ekki hafi verið vísvitandi eitrað fyrir köttunum en ætla að fylgja málinu eftir eins og svo sé. Þeir hafa því tilkynnt málin til héraðsdýralæknis suðvesturumdæmis. Stórfelld brot gegn dýraverndarlögum geta varðað allt að tveggja ára fangelsi.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira