Markmiðið að rjúfa félagslega arfinn Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 12. desember 2016 07:00 Koma á í veg fyrir að börn einstæðra fátækra foreldra verði sjálf fátækir foreldrar, segja þær Þuríður Sigurðardóttir, verkefnastjóri Tinnu, og Elísabet Karlsdóttir, forstöðumaður félags- og fjölskyldumiðstöðvar Breiðholts. vísir/eyþór
Tuttugu ungar einstæðar mæður í Breiðholti, sem fengið hafa fjárhagsaðstoð til framfærslu í lengri tíma, fá nú aðstoð hjá félags- og fjölskyldumiðstöð Gerðubergs til að byggja sig upp og afla sér menntunar. Verkefninu, sem er nefnt Tinna og fór í gang síðastliðið vor, er ætlað að rjúfa félagslegan arf. „Úrræðið er hugsað fyrir unga einstæða foreldra og ef ungur einstæður faðir hefði uppfyllt skilyrði fyrir þátttöku hefði viðkomandi verið boðin þátttaka,“ tekur Elísabet Karlsdóttir, forstöðumaður félags- og fjölskyldumiðstöðvarinnar, fram. Verkefnið og umgjörð þess byggist á niðurstöðum rannsóknarinnar; Jaðarstaða foreldra – velferð barna, sem Rannsóknarstofnun í barna og fjölskylduvernd við Háskóla Íslands vann að beiðni velferðarsviðs borgarinnar. Þar var skoðað hvort atvinnustaða foreldra hafi áhrif á þátttöku barna í íþrótta- og tómstundaiðkun og hvaða hindranir verði á vegi foreldra sem fá fjárhagsaðstoð þegar þeir vilja nýta sér þjónustu fyrir börnin sín. Gert er ráð fyrir að a.m.k. 15-20 einstæðum foreldrum verði vísað í verkefnið á ári hverju, að því er segir á vef velferðarráðuneytisins sem styrkir verkefnið. Elísabet segir verkefnið, sem er tilraunaverkefni til tveggja ára, klæðskerasniðið fyrir hvern og einn. Boðið er upp á alls konar námskeið eins og til dæmis í matreiðslu og hreyfingu auk foreldranámskeiðs. Börnin eru jafnframt aðstoðuð við að komast í tómstundir. Þuríður Sigurðardóttir, verkefnastjóri Tinnu, segir fyrstu mánuðina hafa farið í að kynnast fjölskyldunum og kanna áhugasvið þeirra, líðan og getu. „Konurnar eru misjafnlega fljótar að rétta úr kútnum en þær hafa það markmið að það verði jákvæðar breytingar á lífi þeirra og barnanna þeirra,“ segir hún. Hún bætir við að í haust hafi svo verið hægt að gera einstaklingsáætlun. „Fimm kvennanna eru nú komnar í framhaldsskóla. Nokkrar eru í Mími Símenntun og ein í hópnum er komin í vinnu.“ Stutt skólaganga er sameiginleg með ungu mæðrunum. „Dæmi eru um að þær hafi ekki lokið námi í grunnskóla. Í þeim tilfellum höfum við getað nýtt grunnmenntaskóla Mímis eða Kvennasmiðjuna. Það eru fyrstu skrefin sem þarf að taka áður en hægt er að fara í lengra nám,“ segir Þuríður. Elísabet leggur áherslu á að meginmarkmið verkefnisins sé að rjúfa félagslega arfinn þannig að börn einstæðu foreldranna verði ekki sjálf fátækir foreldrar.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Erlent Fækkar lögregluembættum Innlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Erlent Fleiri fréttir Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Sjá meira