Veislusalur Björgólfs við Fríkirkjuveg veldur nágrönnum áhyggjum Garðar Örn Úlfarsson skrifar 12. desember 2016 07:00 Jeppi skemmdist er friðaður steinveggur hrökk undan vörubíl sem bakkað var fram hjá Laufsávegi 24. Myndir sem fylgdu athugasemdum sýna aðstæður.
Eigendur Laufásvegar 24 segjast ósáttir við breytta notkun á Fríkirkjuvegi 11 og kvarta undan ónæði og skemmdum vegna framkvæmda. „Í mjög smáu letri segir að gert sé ráð fyrir að 155 manns að hámarki geti setið og snætt í samkomusal, borðsal og bar á fyrstu hæð hússins. Við viljum benda á að þau þrjú bílastæði og eitt fyrir hreyfihamlaða sem gert er ráð fyrir á Fríkirkjuvegi 11 geta með engu móti uppfyllt þörfina fyrir bílastæði þó aðeins helmingur af þessum fjölda væri samankomin á Fríkirkjuvegi 11 á sama tíma,“ segir í bréfi íbúa og eigenda Laufásvegar 24 til skipulagsyfirvalda í Reykjavík. Fríkirkjuvegur 11 er í eigu Novators, félags Björgólfs Thors Björgólfssonar, sem keypti húsið af Reykjavíkurborg fyrir hrun og hefur verið að gera á því breytingar. Fólkið á Laufásvegi 24, sem er ofan við Fríkirkjuveg 11, kveður framkvæmdir við síðarnefnda húsið hafa neikvæð áhrif á eign þeirra og þægindi íbúanna. „Ennfremur erum við ekki sátt við að borgin leyfi svona stórkostlegar breytingar á notkun hússins án þess að fara í meiri kynningar fyrir íbúa á svæðinu,“ segir í bréfi þeirra.Myndir sem fylgdu athugasemdum eiganda Laufásvegar 24 sýna þrönga aðkeyrslu framhjá húsinu.Þá er rakið að þrettán bílastæði séu framan við Laufásveg 25-27. Margir keppi um þessi stæði; starfsmenn bandaríska sendiráðsins, skólanemar og í framtíðinni gestir Fríkirkjuvegar 11. „Borgin verður að gæta þess að mismuna ekki íbúum sínum. Laufásvegur var skipulagður sem íbúðarsvæði, en borgin leyfir meiri og meiri notkun á svæðinu sem aðeins getur flokkast undir opinbert svæði. Nú í næstum tvö ár hafa þessi bílastæði oft verið óaðgengileg vegna mikilla framkvæmda á Fríkirkjuvegi 11. Hvorki borgin né framkvæmdaaðili gerðu íbúum grein fyrir hvað í vændum væri.“ Í umsögn um athugasemdir bréfritaranna segir embætti skipulagsfulltrúa að í samþykktri byggingarleyfisumsókn eiganda Fríkirkjuvegar 11 komi fram að sótt verði um tækifærisleyfi fyrir hverja notkun veislu og ráðstefnusala. Fríkirkjuvegur 11 er í eigu Novators, félags Björgólfs Thors Björgólfssonar, sem keypti húsið af Reykjavíkurborg fyrir hrun og hefur verið að gera á því breytingar.vísir/gva„Og því er ekki um stöðuga notkun að ræða. Engar breytingar eru gerðar á fjölda bílastæða í nýrri byggingarleyfisumsókn,“ segir í umsögninni. Því er hafnað að málið hafi ekki verið nógu vel kynnt og lagt til að byggingarleyfið verði samþykkt. Sem skipulagsráð borgarinnar gerði. Vegna framkvæmdanna við Fríkirkjuveg 11 hefur stórum bílum verið ekið niður þröngt sund ofan af Laufásvegi framhjá húsi númer 24. Steinveggur sem þar var skemmdist er vörubíll bakkaði þar niður og féll á jeppa í innkeyrslunni. „Steinveggurinn var síðan tekin í burtu af framkvæmdaraðilum en ekkert samband haft við eigendur eða íbúa á Laufásvegi 24. Framkvæmdir á Fríkirkjuvegi 11 hafa ollið okkur ónæði og áreiti, mikill hávaði og umferð stórra ökutækja. Sífellt verið að bakka niður aðreinina með stórum ökutækjum, aðrein sem er í raun aðeins fyrir fótgangandi,“ segja eigendur Laufásvegar 24 sem frábiðja sér frekara ónæði og ágengi. „Við viljum að að þessi veggur verði endurbyggður í sinni upprunalegu mynd alveg að gangstétt.“ Undir þetta tekur skipulagsfulltrúi. Steinveggurinn sé friðaður vegna aldur og hann eigi að lagfæra og endurgera og færa inn á lóðaruppdrætti.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira