Hælisleitandi ákærður fyrir nauðgun og dæmdur í farbann Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 12. desember 2016 21:25 Maðurinn sætir farbanni til 3. janúar en hann er ákærður fyrir nauðgun. vísir/gva
Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur frá því í liðinni viku um að hælisleitandi sem ákærður er fyrir nauðgun skuli sæta farbanni til 3. janúar næstkomandi. Í úrskurði héraðsdóms er vitnað til greinargerðar héraðssaksóknara sem þann 2. desember gaf út ákæru á hendur manninum fyrir nauðgun sem á að hafa átt sér stað á gistiheimili þann 11. mars síðastliðinn. Brotaþoli í málinu fór á neyðarmóttöku Landspítala þann 13. mars í fylgt lögreglu „eftir að lögregla hefði haft afskipti af henni í miðbæ Reykjavíkur vegna slæms ástands og uppnáms hennar. Við rannsókn málsins hafi ákærði verið yfirheyrður þrisvar sinnum og hafi hann neitað sök og sagt að hann hefði ekki haft kynferðislegt samneyti við brotaþola. Meðal rannsóknargagna málsins séu niðurstöður DNA-rannsóknar þar sem fram komi að DNA-snið úr sýni af nærbuxum brotaþola sé hið sama og DNA-snið ákærða. Þá liggi fyrir samskipti brotaþola og ákærða af Facebook fyrir og eftir umræddan dag, sem og framburðir vitna,“ eins og segir í úrskurði héraðsdóms. Maðurinn sem ákærður er í málinu er eins og áður segir hælisleitandi hér á landi og dvelur nú á vegum Barnaverndarnefndar Reykjavíkur. Útlendingastofnun hefur synjað honum um hæli og er mál hans nú til meðferðar hjá kærunefnd útlendingamála. „Það sé mat héraðssaksóknara að kærði kunni að reyna að komast úr landi og telji héraðssaksóknari nauðsynlegt að tryggja nærveru hans á meðan sakamálið á hendur honum sé til meðferðar fyrir dómstólum.“ Á þetta mat saksóknara féllust bæði héraðsdómur og Hæstiréttur og verður hann því í farmbanni á meðan mál hans er til meðferðar hjá dómstólum, en þó ekki lengur en til 3. janúar næstkomandi.
Mest lesið „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Innlent Koma af fjöllum varðandi áform borgarinnar Innlent Spreyttu þig á PISA-spurningunum Innlent Lögreglan leitar tveggja drengja frá Borgarnesi Innlent Uppsagnir hjá dómsmálaráðuneytinu Innlent Salurinn veltist um af hlátri þegar vitni hringdi inn frá Albaníu Innlent Þriggja ára fangelsi fyrir að frelsissvipta æskuvin sinn Innlent Hjólahvíslarinn og lögreglan björguðu Latabæ Innlent Drengirnir hafi látið vita af sér Innlent Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Erlent Fleiri fréttir Hætt í flokknum eftir að honum blöskraði samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Trúfélögin hafi greinilega ekki fylgst með innhólfinu Þriggja ára fangelsi fyrir að frelsissvipta æskuvin sinn Brim sýknað af kröfum foreldra sjómannsins Sundabraut verði eitt það fyrsta á dagskrá Uppsagnir hjá dómsmálaráðuneytinu Gefa ríkisstjórninni rauða spjaldið Ríkið lagði eldri borgarana Laun Wolt sendla undir þúsund krónum á klukkutímann „Get ég komið fjórtán lítrum fyrir í tíu lítrum af flöskum?“ Koma af fjöllum varðandi áform borgarinnar Rúmlega þúsund farþegar fært til flug og enginn sáttafundur í kjaradeilu Drengirnir hafi látið vita af sér Sækjandi fékk sínu framgengt: „Fabríkera einhver gögn og leggja fram“ Afturkalla lóðaúthlutun til tveggja trúfélaga Spreyttu þig á PISA-spurningunum „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Hlaut Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti Geti fundið Tækniskólanum góðan stað á Akureyri Hjólahvíslarinn og lögreglan björguðu Latabæ Með lambúshettu að prófa sírenur og gjallarhorn Lögreglan leitar tveggja drengja frá Borgarnesi Alelda bíll í Kópavogi Grunaður barnaníðingur gengur laus Varanlega sviptur vörslu á hundum sem hann skildi eftir í sóðaskap Orð yfirmanns síns „ósanngjörn“ og „ófagleg“ Dularfullt drónaflug í Kópavogi vekur íbúum ugg Gæti þaggað niður í röddum landsbyggðarinnar Báðir aðstoðarmennirnir horfnir á stuttum tíma Tvö mál í dag þar sem ógnað var með hnífi Sjá meira