Betri nýting orkuauðlinda með nýjum samningum Svavar Hávarðsson skrifar 13. desember 2016 07:15 Án samninganna hefði í raun þurft að stækka virkjanir sem nemur stækkun Búrfellsvirkjunar – eða tæplega 150 MW. Vísir/Vilhelm
Landsvirkjun hefur lokið samningagerð við sex sölufyrirtæki rafmagns. Um er að ræða nýtt fyrirkomulag samninga sem taka gildi um næstu áramót. Þetta nýja fyrirkomulag felur í sér mikilvæga breytingu fyrir Landsvirkjun því um leið og það tekur gildi renna út samningar sem voru gerðir árið 2005 og hafa gilt í 12 ár. Landsvirkjun gerði stóra rafmagnssamninga við sex sölufyrirtæki um sölu á raforku árið 2005. Samningarnir voru til eins, fimm, sjö og tólf ára. Nú um áramótin renna út samningarnir sem voru til tólf ára. Sölufyrirtækin eru Orkusalan, Orka náttúrunnar, HS Orka, Fallorka, Orkubú Vestfjarða og Rafveita Reyðarfjarðar. Landsvirkjun selur ekki rafmagn beint til heimila eða smærri fyrirtækja heldur á heildsölumarkaði til sölufyrirtækja sem selja það áfram til endanotenda. Sölufyrirtækin kaupa hluta orku sinnar af Landsvirkjun en vinna einnig hluta í eigin virkjunum. Um 20 prósent af rafmagnssölu Landsvirkjunar eru seld með þessum hætti, en 80 prósent fara til stórnotenda. Með nýju fyrirkomulagi samninga þurfa sölufyrirtækin ekki lengur að binda aflkaup sín yfir heilt ár í senn. Rafmagnsnotkun er að jafnaði minni yfir sumarmánuðina og því geta sölufyrirtækin náð verulegri hagræðingu í innkaupum sínum með því að kaupa minna afl á þeim tíma. Landsvirkjun getur nýtt tækifærið og skipulagt viðhaldsverkefni betur en áður og selt þeim sem á þurfa að halda afl með styttri fyrirvara. Nýja fyrirkomulagið bætir þannig nýtingu orkuauðlinda landsins og eykur sveigjanleika orkufyrirtækja til að bregðast við breyttum aðstæðum í rekstri. Samkvæmt áætlunum sölufyrirtækjanna sex um innkaup rafmagns til endursölu til heimila og smærri fyrirtækja mun meðalverð lækka um 2,6 prósent á föstu verðlagi milli ára með tilkomu nýju samninganna. Það er svo undir sölufyrirtækjunum komið hvort þessi hagræðing skilar sér til neytenda – heimila og smærri fyrirtækja.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira