Vinstri vængurinn logar í illdeilum Jakob Bjarnar skrifar 13. desember 2016 15:56 Vinstrið logar í illdeilum og gamalt komma/krata hatur hefur blossað upp. Sverrir segir gott að þeir hafi nú losnað við Össur af þingi.
Fjölmargir á vinstri væng stjórnmálanna hafa ekki getað leynt vonbrigðum sínum með það að uppúr síðustu stjórnarmyndunarviðræðum slitnaði. Á samfélagsmiðlum hafa spjótin einkum beinst að óbilgirni Vinstri grænna og fer það mjög fyrir brjóstið á mönnum í þeim herbúðunum. Uppúr sauð nýverið á Facebookvegg Svavars Gestssonar fyrrum ráðherra Alþýðubandalagsins gamla og föður Svandísar Svavarsdóttur þingmanns og ráðherraefnis Vinstri grænna. Mega þær væringar heita lýsandi fyrir ástandið á vinstri vængnum. Þar er hver höndin upp á móti annarri. Tvíburarnir Sverrir og Ármann Jakobssynir, sem eru bræður Katrínar Jakobsdóttur, formanns VG, misstu sig hreinlega við Össur Skarphéðinsson fyrrum ráðherra og þingmann Samfylkingarinnar. Svavar telur að einhverjir vonist til að losna við VG úr vinstra litrófi og Ármann segist telja VG vera vinstra litrófið. Össur blandar sér í leikinn og þá fer að hitna í kolunum svo mjög að uppúr sýður. „Engar spælingar drengir. Sjáið bara til þess að á þessari viku sem fer í hönd verði tekið upp samræmt göngulag.“Tvíburabræðurnir ráðast báðir á ÖssurÁrmann íslenskufræðingur á erfitt með að leyna gremju sinni og segir hann þessar viðræður hafa verið á rangri braut... „og gott hjá VG að slíta þeim. Vonandi skilja hinir flokkarnir að það verður að finna betri grunn ef það á að mynda hér góða stjórn.“ Össur segir gott að fá það skýrt fram „hjá félaga Ármanni hverjir það voru sem slitu“. Þetta er meira en Ármann þoldi og segir: „Ekki kalla mig félaga þinn.“ Össur segir þá „Íslands ógæfu verður allt að vopni.“ En, þau verða ekki lokaorð þessa þráðar Svavars. Sagnfræðingurinn Sverrir tekur upp þykkjuna fyrir tvíburabróður sinn, blandar sér óvænt í leikinn og hvæsir á Össur: „Nei ekki allt. Við erum amk. laus við þig af þingi.“Bræður munu berjastÓðinn Jónsson útvarpsmaður á RÚV telur þetta allrar athygli vert, hann tók mynd af rimmunni og telur hana standa fyrir sínu sem einþáttung. Sem Óðinn vill kalla „Bræður munu berjast“. Sú mynd ferðast nú um netheima mönnum til furðu, skemmtunar og upplýsingar um ástandið á vinstri væng stjórnmálanna nú um stundir. „BRÆÐUR MUNU BERJAST. (Einþáttungur) Persónur og leikendur: Gamli leiðtoginn: Svavar Gestsson Varðmennirnir: Ármann og Sverrir Jakobssynir Ólátabelgirnir (svikararnir): Mörður Árnason, Össur Skarphéðinsson Hugsjónapilturinn: Grímur Atlason Blaðberinn: Hallgrímur Helgason“Einþáttungurinn Bræður munu berjast.
Mest lesið Lögregla rannsakar andlát í Bolungarvík Innlent Vill kvittanir frá framboði Höllu Innlent Tafir á Miklubraut í sumar vegna framkvæmda Innlent Huldumaður bað um skóflu, límband, hanska og kúbein Innlent Baráttan um Bessastaði gæti orðið gífurlega spennandi Innlent Gæti haft gríðarlega þýðingu fyrir Ísafjörð Innlent Börnin eru fundin Innlent Dúxaði í Verzló með tíu í einkunn og ári á undan í skóla Innlent Meðhöndlarinn farinn að nudda á Kvíabryggju Innlent Segir árásirnar í Rafah „hræðileg mistök“ Erlent Fleiri fréttir Lögregla rannsakar andlát í Bolungarvík Vill kvittanir frá framboði Höllu Baráttan um Bessastaði gæti orðið gífurlega spennandi Háspennubilun í Breiðholti Gæti haft gríðarlega þýðingu fyrir Ísafjörð Tafir á Miklubraut í sumar vegna framkvæmda Huldumaður bað um skóflu, límband, hanska og kúbein Soffía er nýr skólameistari FSu Forsetakosningar, kjaradeilur og hundrað kílómetra ganga Tveir bílar skullu saman í Kolgrafarfirði Ungmenni kveiktu í skólabókum Einn til viðbótar í gæsluvarðhald en öðrum sleppt Börnin eru fundin Heilablóðfall sjaldgæfur fylgikvilli eftir ósæðarlokuskipti Efling vísar deilu við borgina til sáttasemjara Stefnir í að losunarskuldbindingar náist Andrea Kristín enn dæmd í fangelsi Lending í Nauthólsvík lengi ferðina um korter til tuttugu mínútur Brosandi þótt aftur sé ekið á flugvél Verzlinga Aðalmeðferð í Bátavogsmálinu fer fram í sumar Ástþór eyðir langmestu Kosningaúrslit yfirleitt nálægt niðurstöðum kannana „Þetta er bara eins og að finna gull“ Þyrlulæknar ósáttir og Ísfirðingar fagna heitavatnsfundi Dúxaði í Verzló með tíu í einkunn og ári á undan í skóla Taldir hafa sviðsett árekstur í Hafnarfirði Myndi ekki syrgja brotthvarf neftóbaksins Fluttur með þyrlu vegna vinnuslyss á bóndabæ Flugferð aflýst eftir að þjónustubíll rakst í flugvél Meðhöndlarinn farinn að nudda á Kvíabryggju Sjá meira