Landfræðileg samþjöppun afgerandi Svavar Hávarðsson skrifar 15. desember 2016 07:00 Bjarki Vigfússon, hagfræðingur hjá Íslenska sjávarklasanum
Gríðarlegar breytingar hafa orðið í íslenskum sjávarútvegi síðastliðin 20-25 ár þar sem mikil samþjöppun hefur orðið í eignarhaldi aflaheimilda og í landfræðilegri dreifingu fiskvinnslunnar síðan árið 1990. Þessar breytingar eru jafnframt enn stærri í sniðum en margur heldur. Þetta kemur skýrt fram í nýrri greiningu þeirra Bjarka Vigfússonar og Hauks Más Gestssonar, hagfræðinga Íslenska sjávarklasans.Gengur vel – núna Í greiningu sinni, Verstöðin Ísland – hagfræðileg og landfræðileg samþjöppun í íslenskum sjávarútvegi 1993 til 2013, segja þeir Bjarki og Haukur Már frá hvernig miðstýrð offjárfesting í togurum og fiskvinnslum á 8. áratug síðustu aldar leiddi til ósjálfbærrar nýtingar auðlindarinnar og sársaukafullri hagræðingu, eða endurskipulagningu í íslenskum sjávarútvegi. Varpað er ljósi á með hvaða hætti þessi hagræðing hefur átt sér stað, hvaða kraftar hafa þar verið í aðalhlutverkum og hvernig þeir hafa haft ólík áhrif á byggðirnar í landinu og einstaka landshluta. Þeir benda á að greinin er sjálfbær og skilar góðri afkomu; lagar sig hratt að tæknibreytingum og kröfum viðskiptavina sinna. Engum dylst, segja þeir, að íslenskur sjávarútvegur stendur framarlega að mörgu leyti og framtíð hans má teljast björt, ólíkt því sem blasti við fyrir ekki svo löngu. „Um sjávarútveginn standa hins vegar enn mjög háværar og oft hatramar deilur sem eiga rætur, meðal annars, í erfiðri stöðu sjávarbyggðanna og minnkandi byggðafestu í mörgum þeirra, bæði vegna minnkandi afla þar til vinnslu en einnig vegna óvissunnar um framtíðina sem hagræðingarferlið og samþjöppunin hefur haft í för með sér. Þetta á ekki síst við um allra minnstu sjávarbyggðirnar, sem kannski eiga fæsta möguleika til atvinnuuppbyggingar af einhverju tagi,“ segir þar.Fórnarkostnaður hagræðingar Athyglisvert er – og er það sérstaklega dregið fram hér – hvernig nokkrir stórir verkunarstaðir draga nokkuð hratt til sín sífellt hærra hlutfall fiskaflans til vinnslu á meðan aðrir tapa aflanum frá sér. Nokkuð skýrt mynstur sést í því hvert á landið aflinn leitar eftir tegundum. Í uppsjávariðnaði hefur landfræðileg samþjöppun vinnslunnar verið afar afgerandi og vinnsla uppsjávarfisks fer nú að langstærstum hluta fram í tíu bæjarfélögum. Þar af eru nokkur nágrannasveitarfélög á Austurlandi með meira en helming aflans til vinnslu. Vinnsla botnfisks hefur ekki þjappast saman á einstakar byggðir með jafn afgerandi hætti, og kemur þar margt til, en sömu tilhneigingar til samþjöppunar gætir þar einnig, þar sem suðvesturhornið virðist hafa sterkt aðdráttarafl. Í nokkrum bæjarfélögum hefur umfang sjávarútvegs farið úr því að vera mjög myndarlegt í nánast ekkert á síðastliðnum 20 árum.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur Innlent Svavar Sigmundsson er látinn Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent Fleiri fréttir Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðarbæjar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri „Nú hef ég auðvitað ekkert á móti fólki frá Nígeríu“ Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Rannsóknin á lokametrunum Sjá meira