Margra vikna rannsókn leiddi til handtöku fimm manna Snærós Sindradóttir skrifar 16. desember 2016 07:00 Mennirnir eru grunaðir um að flytja inn fjögur kíló af amfetamíni og töluvert magn af sterum. Vísir/Hari
Rannsókn lögreglu á innflutningi fimm manna á fjórum kílóum af amfetamíni og miklu magni af sterum var umfangsmikil og hafði staðið yfir í nokkrar vikur þegar mennirnir voru handteknir og úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Eins og fram kom í tilkynningu frá lögreglu í gær var einum manninum sleppt en gæsluvarðhald hinna fjögurra mannanna rennur út í dag. Mennirnir eru allir fæddir á bilinu 1982 til 1993. Tveir mannanna eru háskólanemar en í starfsnámi hjá líftæknifyrirtæki í Reykjavík. Lögreglan rannsakaði meðal annars vinnuaðstöðu mannanna hjá fyrirtækinu. Einn er fasteignasali, einn er sölumaður fæðubótarefna. Þá er fimmti maðurinn starfsmaður hjá póstdreifingarfyrirtæki. Heimildir Fréttablaðsins herma að rannsókn lögreglu beinist að því hvort efnin hafi verið send hingað til lands í gegnum það tiltekna póstdreifingafyrirtæki og starfsmanni fyrirtækisins verið gert að veita efnunum viðtöku. Mennirnir fimm eru allir íslenskir ríkisborgarar en einn þeirra er af erlendu bergi brotinn. Eins og áður segir hafði lögregla fylgst með mönnunum um nokkurra vikna hríð. Ekki fæst uppgefið hvernig lögregla komst á snoðir um málið en heimildir Fréttablaðsins herma að í aðgerðum lögreglu hafi efnunum meðal annars verið skipt út fyrir gerviefni og sendingunni síðan leyft að fara áfram til viðtakanda. Þá hafi upptökutæki eða staðsetningartæki verið komið fyrir í sendingunni svo lögregla gæti fylgst með hvert henni var ætlað að fara. Að minnsta kosti tveir mannanna fimm hafa keppt í vaxtarrækt en í tilkynningu frá lögreglunni kom fram að töluvert magn af sterum hefði verið í sendingunni. Gæsluvarðhald mannanna rennur út í dag. Sveinn Andri Sveinsson, verjandi eins mannanna, segist ekki vilja tjá sig um málið á meðan það er enn í rannsókn. „Ég bind þó vonir við það að gæsluvarðhaldsvist verði ekki framlengd,“ segir Sveinn.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Fleiri fréttir „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Sjá meira