Óhræddur við að prófa nýtt 1. desember 2016 10:00 Hér klæðist Sturla Sær RVK HOODIE Reykjavík Roses hettupeysu, röndóttum bol sem hann saumaði og Levi´s highrise skinny buxum sem hann reif. Skórnir eru Polo Ralph Lauren Chelsea Boots. MYNDIR/ERNIR
Sturla Sær Fjeldsted fékk fyrst áhuga á tísku fyrir alvöru á upphafsárum sínum í menntaskóla. Þá hóf hann að hugsa meira um hverju hann klæddist og fór að skapa sinn eigin stíl. Á öðru ári byrjaði hann að fikta við saumaskap og tók eitt saumanámskeið í vali. „Ég fór að prófaði mig áfram, breytti sniðum og saumaði einnig flíkur frá grunni. Mér var síðar gefin saumavél og síðan hefur getan aukist gríðarlega. Á þriðja ári tók ég þátt í frumkvöðlaverkefni ásamt Arnari Leó og Konráði Loga vinum mínum og stofnuðum við fatafyrirtæki undir nafninu Reykjavík Roses. Við gáfum út nýja fatalínu núna í lok sumars og er hún til sölu í Smash og selst vel. Það er gaman hvað við höfum fengið frábærar viðtökur.“ Utan þess að teikna, hanna og sauma föt hefur Sturla Sær einnig áhuga á íþróttum, hjóla- og snjóbrettum.Levi’s rauðröndóttur bolur, Levi’s skinny buxur og Carhartt palm belti. Skórnir eru Vans old skool true white.Lýstu fatastílnum þínum Hann er einfaldur en um leið fremur fjölbreyttur, best lýst sem „streetstyle“, „skate“ blandað við pönk, hip hop og smá af breskum „urban“ stíl. Ég elska að vera girtur og einnig að klæðast stórum flíkum. Stíllinn minn breytist hratt því ég hef gaman að því blanda saman mismundi tísku og er ekki hræddur við að prófa nýja hluti.Hvernig fylgist þú með tískunni? Ég nota mest Instagram til að fylgjast með en skoða líka netsíður. Það sem ég sé með eigin augum hefur samt mest áhrif og er að mínu mati besta leiðin til að fylgjast með. Þá fæ ég oft hugmyndir og púsla saman „outfit-um“ í huganum sem ég útfæri svo betur.Svört La Madre Reykjavík Roses hettupeysa, Stussy spiral collar bolur, Levi's skinny buxur sem Sturla reif sjálfur. Skórnir eru VANS sk8-HI black og jakkinn frá Samsoe & Samsoe.Hvað einkennir klæðnað karla? Karlmenn pæla mikið í því hverju þeir klæðast. Hip hop og tónlistarmenn almennt eru miklir áhrifavaldar. Núna er mikið 90’s og allt „oversized“.Áttu þér uppáhaldsverslanir? Núna er það klárlega Smash. Ég á mér í rauninni engar uppáhaldsverslanir heldur geng á milli verslana, bæði heima og erlendis. Ef mér líst vel á flíkina þá kaupi ég hana. Annars sauma ég einnig mikið af fötum sem ég geng í daglega.“Uppáhalds hönnuðir? Margir íslenskir hönnuðir eru að gera frábæra hluti og gaman að sjá hvað fleiri og fleiri eru að taka af skarið með sína eigin hönnun. Sjálfur er ég að hanna föt og koma mér á framfæri. Ef ég á að nefna erlenda hönnuði eru það Jerry Lorenzo (Fear of God) og Demna Gvasalia (Vetements).Áttu eina uppáhaldsflík? Ég á frábært safn af buxum sem ég hef bæði breytt og lagfært að mínum þörfum. Uppáhaldsflíkin mín núna eru dömu Levi´s buxurnar með bótum á hnénu. Annars eru flestar buxurnar mínar dömubuxur og ég skammast mín alls ekkert fyrir það. Flíkin sem ég held mest upp á er meira en hálfrar aldar gamall silki sloppur sem afi minn átti.Bestu og verstu kaupin? Ég gerði líklega verstu kaupin þegar ég keypti fyrst föt á netinu. Við getum orðað það svoleiðis að ég fékk alls ekki það sama og ég pantaði mér. Mín bestu kaup eru líklegast bomber jakki sem ég keypti í London fyrir nokkrum árum. Hann varð grunnurinn af mörgum jökkum sem ég hef hannað og saumað síðan.Séð aftan á La Madre Reykjavík Roses hettupeysuna.Notar þú fylgihluti? Ég nota ekki mikið af fylgihlutum. Þó er ég stundum með armbönd eða rúskinnsreimar utan um úlnliðina og nota mikið belti. Hinsvegar fer úrið sem ég erfði frá afa mínum á Sigló sjaldan af mér.Hvað er framundan í vetur? Við erum að endurpanta síðustu línu Reykjavík Roses þessa dagana en erum samhliða að vinna að nýrri línu sem kemur út á næsta ári. Við félagarnir í Reykjavík Roses erum líka að byrja á nýju spennandi verkefni sem verður gaman að kynna betur þegar það er farið í gang. Annars er ég á leið í tveggja mánaða heimsreisu í janúar. Það verður gaman að fá tækifæri til að kynnast nýjum menningar- og tískuheimi.
Mest lesið Í þrjátíu ára gömlum fötum af mömmu Tíska og hönnun Endurheimti lífsgleðina við gerð ostabakkanna Lífið Ástrós Trausta, John Legend og Bæjarins Beztu í Kjós Lífið „Þetta situr enn þá í mér í dag“ Lífið Tískan við þingsetningu: Þjóðlegur þriðjudagur Tíska og hönnun Á leið á heimsmeistaramót í drifti: „Íslendingarnir eru til, við getum þetta líka“ Lífið Misvel tekið í gjörning Sverris: „Lokkandi beita fyrir niðrandi ummæli“ eða ást á tungumálinu Menning „Pabbi Rúríks“ lét sig ekki vanta Lífið Leifur Andri og Hugrún selja íbúðina í Garðabæ Lífið Heiðra Arvo Pärt í Landakotskirkju Tónlist Fleiri fréttir Leifur Andri og Hugrún selja íbúðina í Garðabæ Á leið á heimsmeistaramót í drifti: „Íslendingarnir eru til, við getum þetta líka“ Endurheimti lífsgleðina við gerð ostabakkanna Ástrós Trausta, John Legend og Bæjarins Beztu í Kjós Afar ólíklegt að Ísland taki þátt í Eurovision verði Ísrael með Sunneva syrgir Bellu: „Ég mun alltaf sakna þín“ „Pabbi Rúríks“ lét sig ekki vanta Alveg sama þótt hann tapi mörgum milljónum „Þetta situr enn þá í mér í dag“ Jóhann Berg og Hólmfríður selja glæsihöllina á Arnarnesi Dóttir Arons Kristins og Láru komin með nafn Segist ekki dauður heldur „sprelllifandi“ Sonur Hersis og Rósu kominn með nafn Ástin kviknaði á Kaffibarnum Staðfesta þátttöku í Eurovision með fyrirvara um þátttöku Ísraela Heitustu trendin í haust „Ég elskaði þig í fyrra lífi, ég elska þig í þessu lífi og mun finna þig í næsta“ Sjarmerandi Vesturbæjarperla með sjávarútsýni Óvíst hvort Ísland verði með í Eurovision Guðrún Sørtveit og Steinar „loksins“ trúlofuð Skringilega stór kaffibolli: „Ég verð aldrei aftur hreinn“ Brúðarbíllinn gömul dráttarvél frá langafa Stjörnulífið: „Skemmtilegasta kvöld lífs míns“ Rick Davies í Supertramp er látinn Gleði og samvera í 60 plús leikfimi á Selfossi Kynlífsstellingar sem kveikja í kofanum Virkilega sláandi lífsreynsla að koma til Grindavíkur Bein útsending: Haustbingó Blökastsins Slóvenar draga sig úr Eurovision ef Ísraelar verða með Myndaveisla: Líf og fjör á Ljósanótt Sjá meira
Misvel tekið í gjörning Sverris: „Lokkandi beita fyrir niðrandi ummæli“ eða ást á tungumálinu Menning
Misvel tekið í gjörning Sverris: „Lokkandi beita fyrir niðrandi ummæli“ eða ást á tungumálinu Menning