Búið að handtaka einn vegna brunans í Keflavík Birgir Olgeirsson skrifar 1. desember 2016 16:47
Búið er að handtaka einn í tengslum við rannsókn lögreglunnar á Suðurnesjum vegna brunans í fjölbýlishúsi við Hafnargötu í Keflavík í nótt. Sá var handtekinn klukkan tvö í dag en lögreglan hefur ekki farið fram á gæsluvarðhald yfir honum. Lögreglan getur haldið viðkomandi í allt að sólarhring án þess að fara fram á gæsluvarðhald. Um er að ræða konu á fertugsaldri. Grunur leikur á að hugsanlega hafi verið íkveikju að ræða í stigagangi hússins. Hátt í þrjátíu manns búa í húsinu, meðal annars hælisleitendur á vegum Reykjanesbæjar, en átta voru fluttir á slysadeild Landspítalans vegna reykeitrunar. Lögreglan segir konuna sem grunuð er um íkveikjuna hafa átt í deilum við aðra manneskju. Jón Halldór Sigurðsson, lögreglufulltrúi hjá lögreglunni á Suðurnesjum, segir lögregluna hafa útilokað að um hatursglæp hafi verið að ræða. „Hér er um að ræða fyrrum sambýlinga sem skilja ekki sáttir. Við viljum að öðru leyti ekki tjá okkur um málið.“ Slökkvilið kom á vettvang um klukkan þrjú í nótt og höfðu íbúarnir þá komið sér sjálfir út. Eldurinn logaði annars vegar í þvottavél í sameiginlegu þvottahúsi á einni hæðinni, en hins vegar í fatahrúgu á öðrum stað, sem vekur grunsemdir um íkveikju, en rúður voru farnar að springa vegna hita. Slökkvistarf gekk vel, en reykræsta þurfti allt húsið.
Tengdar fréttir Átta fluttir á sjúkrahús eftir bruna í fjölbýlishúsi í Keflavík Grunur leikur á að hugsanlega sé um íkveikju að ræða. 1. desember 2016 07:21 Mest lesið Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Innlent Árið gert upp í Kryddsíld 2025 Innlent „Margir sem því miður eru ekki jafn heppnir og ég“ Innlent Segir myndbandsupptöku af því þegar skórnir voru teknir Innlent Tveir með alvarlega áverka eftir hnífstunguárás Innlent Dótturdóttir JFK er látin Erlent Grunaður um stórfellda líkamsárás og frelsissviptingu Innlent Enn fleirum sagt upp hjá Árvakri Innlent „Við bara svolítið sitjum uppi með þetta“ Innlent Hafþór Freyr maður ársins að mati lesenda Vísis og hlustenda Bylgjunnar Innlent Fleiri fréttir Simmi vinsælasti leynigesturinn „Þetta er Íslandsmet, Íslandsmet í svikum“ Tal um Ingu eftir kosningar ekki til sóma Gummi lögga er maður ársins 2025 Árangur breyti ekki alltaf upplifun fólks „Viðreisn jafnvel erfiðari viðfangs en Flokkur fólksins“ Vara við hættu á sinubruna Haldlögðu metmagn af fíkniefnum á árinu Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Árið gert upp í Kryddsíld 2025 Hafþór Freyr maður ársins að mati lesenda Vísis og hlustenda Bylgjunnar Segir myndbandsupptöku af því þegar skórnir voru teknir Tveir með alvarlega áverka eftir hnífstunguárás Vonast til að rafmagn verði komið á seinni partinn Rúmur helmingur bjartsýnn fyrir 2026 Grunaður um stórfellda líkamsárás og frelsissviptingu „Við bara svolítið sitjum uppi með þetta“ Börn niður í leikskólaaldur um helmingur þeirra sem slasast „Margir sem því miður eru ekki jafn heppnir og ég“ Sátt við fyrsta árið og taka stöðuna vegna forfalla ráðherra á næstu dögum Tíu létust í umferðinni á árinu og alvarlegustu slysunum fækkar ekki Árangur aðgerða ekki staðist væntingar almennings Enn fleirum sagt upp hjá Árvakri Ríkisstjórnin sek um ósanngjarna mismunun Vonbrigði í menntamálum og áramótasprengja Hafa áhyggjur af frelsissviptingu barna í brottfararstöð Kristrún ræðir við Pétur um borgarstjórnarframboð Níu ráðherrar funda með Höllu Söfnun fyrir Kjartan gengur vel Komu auga á strandaða ferðamenn við Heklu Sjá meira
Átta fluttir á sjúkrahús eftir bruna í fjölbýlishúsi í Keflavík Grunur leikur á að hugsanlega sé um íkveikju að ræða. 1. desember 2016 07:21