Raunveruleg framkvæmdaáætlun, óskalisti eða plagg til einskis ? Bergur Þorri Benjamínsson skrifar 9. desember 2016 07:00 Á alþjóðadegi fatlaðs fólks 2016 liggja fyrir drög að nýrri Framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks fyrir tímabilið 2017 – 2021, sem er langt og ítarlegt plagg. Þegar rennt er yfir drögin með gleraugum hreyfihamlaðra einstaklinga (sem og allra fatlaðra) koma upp fjölmargar spurningar og því miður vissar efasemdir. Sérstaklega þegar tekið er mið af raunniðurstöðu fyrri framkvæmdaáætlunar sem er búin að vera við lýði frá 2012 og því miður er fjölmargt þar sem alls ekki hefur raungerst, þó vissulega hafi einstaka atriði náð fram að ganga. Hér eru bara tvö dæmi tiltekin sem ekki hafa raungerst. Notendastýrð persónuleg aðstoð (NPA) er enn þá á ís og því enn skilgreind sem tilraunaverkefni. Afar brýnt er að NPA verði lögfest á næstunni, enda hafa flestir stjórnmálaflokkar sett það á stefnuskrá sína fyrir nýafstaðnar kosningar. Kveðið er á um margs konar réttindi fatlaðra og þ.m.t. NPA í Samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Þrátt fyrir að samningurinn hafi verið undirritaður og núna fullgiltur þá hafa allt of fá réttindi sem þar eru tiltekin raungerst. Því er gífurlega mikilvægt að samningurinn verði lögfestur á fyrstu vikum nýs löggjafarþings.Langt í land Takmörkun á aðgengi allra almenningssamgangna. Þar er langt í land en eðlileg og sanngjörn krafa hreyfihamlaðra er að t.d. almenningsvagnar sem ganga út um landið allt verði að vera aðgengilegir öllum, en ekki bara almenningsvagnar sem ganga innan höfuðborgarsvæðisins og í stærstu bæjum landsins. Þá er spurt, hver á að greiða fyrir það? Eðlilegt er að ríkið setji eitthvað af því fjármagni sem fer í að greiða niður almenningssamgöngur í landinu í að bæta aðgengi allra að þeim. Gerð hefur verið krafa til SSH (Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu) í rúm þrjú ár að hluti stofnleiða verði gerðar aðgengilegar með því að taka fyrst og fremst biðstöðvarnar í gegn. Áhugi SSH hefur ekki verið fyrir hendi og enginn raunveruleg breyting því í augsýn. Ekki er mikil bjartsýni á að ný framkvæmdaáætlun breyti miklu þar um, því flöskuhálsinn er ávallt að afar takmarkað fjármagn fylgi svona áætlunum þó margir komi að og mikil vinna liggi að baki (með tilheyrandi kostnaði), þannig að þær enda allt of oft sem eins konar óskalisti sem tekur sig vel út á glærukynningum. Jafnvel hafa dómar bæði í héraði og Hæstarétti staðfest þetta einnig. Má þar nefna nýlegan dóm Hæstaréttar í máli fatlaðrar konu sem vildi búa heima hjá sér, en fær ekki nægan stuðning Reykjavíkurborgar en sem nemur annarri hverri viku. Dómur féll gegn henni. Þá er mál Samtaka endurhæfðra mænuskaddaðra í héraðsdómsmáli gegn Reykjanesbæ varðandi fasteign vegna samkomustaðar í Reykjanesbæ sem er á annarri hæð án lyftu. Málið var dæmt Reykjanesbæ í vil. Í báðum tilfellum var vísað í margumræddan samning. Dómstólar benda hins vegar á að hann hafi enn ekkert lagalegt gildi í dag. Því er spurt hvort raunverulega standi einhver sannfæring að baki nýrrar framkvæmdaáætlunar í málefnum fatlaðs fólks, annað en óskir um betri tíð og blóm í haga til hana fötluðum landsmönnum? Spyr sá sem ekki veit.Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen Skoðun Streita og kulnun Dávur í Dali Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Halldór 03.10.2026 Halldór Skoðun Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir skrifar Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Streita og kulnun Dávur í Dali skrifar Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Sjá meira
Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun
Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir Skoðun
Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar
Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun
Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir Skoðun