Þrjár milljónir ADHD skammta seldir í fyrra Sveinn Arnarsson skrifar 24. nóvember 2016 07:00 Nærri þrjár milljónir dagskammta af Ritalini og Concerta fóru til Íslendinga í fyrra.
Notkun Íslendinga á metýlfenídatlyfjum hefur þrefaldast á síðustu tíu árum. Kostnaður Sjúkratrygginga vegna metýlfenídatlyfja nam nærri sex hundruð milljónum króna í fyrra. Ekkert lát er á komu fíkla til SÁÁ þar sem lyf af þessu tagi eru fyrsta val sprautufíkla sem leita í örvandi efni. Ritalin og Concerta eru langalgengustu metýlfenídatlyf á Íslandi, notuð fyrir ADHD-sjúklinga en einnig misnotuð af fíklum. Halldór Gunnar Haraldsson, verkefnastjóri fjárhagsáætlana hjá Sjúkratryggingum Íslands, segir enga þjóð í heiminum nota metýlfenídatlyf í sama magni og Íslendingar. Árið 2006 greiddu Sjúkratryggingar Íslands með um 900 þúsund skömmtum á ári en í fyrra var sú tala komin upp í 2,9 milljónir skammta. Langstærsti hópurinn sem notar lyfin í dag er á aldrinum 20 til 39 ára.Samanburður við Noreg og Svíþjóð„Það er vitað að hluti efnanna fer á svartan markað, bæði til sprautufíkla sem leita í örvandi efni en einnig höfum við heyrt af háskólafólki sem notar örvandi lyfið til að vaka yfir nótt fyrir próf og þess háttar. Það er hins vegar eðli málsins samkvæmt að við vitum lítið um það þar sem þetta er á svörtum markaði,“ segir Halldór Gunnar. SÁÁ kannaði ítarlega notkun metýlfenídatlyfja árin 2010, 2012 og 2015 og sýna niðurstöður þeirra að ekkert lát er á komu sprautufíkla í meðferð sem velja þennan lyfjaflokk fyrst til að sprauta sig með. Því er ljóst að með hluta af þeim 600 milljónum sem varið er í lyfjaflokkinn frá SÍ er braskað á svörtum markaði og endar hann hjá sprautufíklum. Einnig getur verið að sprautufíklar séu sjálfir áskrifendur að lyfjunum. Til skýringar byggir greining ADHD á huglægu mati viðkomandi læknis, líkt og með aðrar geðraskanir. Læknir þarf að sækja um greiðsluþátttöku til Sjúkratrygginga Íslands og þar sem greining er oft býsna matskennd hefur starfsfólk Sjúkratrygginga takmarkaðar forsendur til að synja umsókn um lyfjaskírteini vegna metýlfenídatlyfja.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Fleiri fréttir „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Sjá meira