Tillaga Íslands um veiðibann á karfa felld á fundi fiskveiðiráðsins Svavar Hávarðsson skrifar 25. nóvember 2016 07:15 Afli úthafskarfa er ekki svipur hjá sjón miðað sem var um árabil – ofveiði er staðreynd. Vísir/Stefán
Tillaga Íslands um að stöðva veiðar á úthafskarfa á Reykjaneshrygg árin 2017 og 2018 var felld á ársfundi Norðaustur- Atlantshafsfiskveiðiráðsins (NEAFC) í síðustu viku. Í tilkynningu frá atvinnu- og nýsköpunarráðuneytinu segir að þessi niðurstaða fundarins sé mikil vonbrigði fyrir Ísland. Þess í stað var samþykkt tillaga um 7.500 tonna heildarveiði 2017. Kom einnig fram á fundinum að Rússar munu setja sér einhliða kvóta upp á 25 þúsund tonn, þannig að heildarveiðin getur orðið um 30 þúsund tonn. Ráðið fer með stjórn fiskveiða utan lögsagna einstakra ríkja á Norðaustur-Atlantshafi. Aðild að því eiga Danmörk (f.h. Færeyja og Grænlands), Evrópusambandið, Ísland, Noregur og Rússland. „Um er að ræða tvo sérstaka karfastofna, sem báðir hafa verið ofveiddir um árabil og eru í útrýmingarhættu ef ekkert er að gert,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins. Rússland viðurkennir ekki stofnmat ICES fyrir karfa við Reykjaneshrygg og setur sér einhliða kvóta sem á þessu ári er því nær þrefalt meiri en ráðlögð heildarveiði. Evrópusambandið og Danmörk hafa síðan talið óásættanlegt að Rússar sætu einir að veiðunum og lagt fram tillögu um takmarkaðar veiðar. Ísland hefur lagt til stöðvun veiðanna, eins og áður sagði. Alþjóðlegir rannsóknaleiðangrar gefa til kynna að stofnstærð efri stofns úthafskarfa hafi minnkað úr 2,2 milljónum tonna árið 1994 í um 91 þúsund tonn árið 2013. Ekki var farinn leiðangur árið 2015 eins og áætlanir gerðu ráð fyrir vegna þess að Rússar drógu sig út mánuði áður en hann hófst. Næsti leiðangur er áætlaður í júní/júlí 2018. Mat neðri stofns úthafskarfa í alþjóðlegum karfaleiðangri árið 2015 er það lægsta síðan mælingar hófust árið 1999.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Erlent Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Innlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Innlent „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Innlent Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Innlent Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Innlent Fleiri fréttir Hafði fé af mótsgesti HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Slysið austan við Vík var alvarlegt Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Aukin hætta á skriðum og grjóthruni Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Fjöldi bíður niðurstöðu og stór stund á Þingvöllum Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Sektaður fyrir að aka á göngugötu Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Höfuðvígi vændismansals, mótmælandi sem brotnaði niður og Þingvellir Björgunarsveitir sóttu göngumann við Háafoss Þingið komið í sumarfrí Samþykkja úrræði fyrir fólk sem sæta þarf öryggisráðstöfunum Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Allt eftirlit matvæla undir einni stofnun Boltinn sé hjá fjarskiptafélögunum Sjá meira