Sigríður kærði sig ekkert um að sitja fyrir á mynd með Brad Pitt Stefán Árni Pálsson skrifar 25. nóvember 2016 15:01 Sigga stillir sér upp í myndatöku Brad Pitts og félaga. Glöggir sjá að neðst á myndinni vinstra megin sést í skíðastaf og mun það vera skíðastafur Brad Pitts.
Sigríður Lóa Jónsdóttir, fararstjóri og sálfræðingur, lenti í einkennilegu atviki. Henni bauðst að sitja fyrir á mynd með Brad Pitt, einhverri helstu stórstjörnu samtímans, en hafnaði því. Viðstöddum og öðrum til mikillar furðu. Hún fékk hins vegar Brad Pitt til að taka af sér mynd. Frá þessu segir í Fólki á fjöllum, nýrri bók eftir Reyni Traustason, blaðamann og fararstjóra í bráðskemmtilegri frásögn Siggu Lóu sjálfrar. Þannig var árið 2002 var hún í skíðaferð í Sun Valley í Idaho. Hún var komin í hæstu brekkur, skíðaði í einveru og naut sýn þegar hún sá fjóra karlmenn. Eða svo gripið sé niður í bókina:„Nei, takið bara mynd af mér einni “ „Ég ætlaði að skíða framhjá þeim en þeir kölluðu á mig. Ég renndi mér til þeirra og þeir vildu endilega að ég tæki mynd af sér. Mér fannst þetta vera truflun á náttúruupplifun minni og vildi helst ekki eyða tíma í að tala við þá. En þeir voru hinir vingjarnlegustu og kynntu sig. Nöfnin fóru inn um annað eyrað en út um hitt. Svo spjölluðum við saman dálitla stund. Svo spyr einn þeirra hvort ég vilji ekki fá mynd af mér með þeim. Ég gaf ekkert út á það en hafnaði síðan boðinu. „Nei, takið bara mynd af mér einni, “ sagði ég og rétti einum þeirra myndavélina mína. Maðurinn virtist vera alveg forviða. Hann benti svo á félaga sinn og spurði hvort ég vildi ekki vera með honum á mynd. Svo endurtók hann nafn hans, en það sagði mér ekkert. Ég þakkaði margfaldlega gott boð en ítrekaði að þeir mættu gjarnan taka mynd af mér einni í þessari stórkostlegu náttúru. Og það varð úr og maðurinn smellti af mér mynd. En það leyndi sér ekki að þeim fannst skrýtið að ég skyldi ekki vilja mynd af mér með þessum gæja.“Ekki segja nokkrum manni frá þessu Hún sagðist vera frá Íslandi og svo var að sjá á svip mannanna að það skýrði ýmislegt. Sigga Lóa velti þessu fyrir sér og eftir að hafa lagt saman tvo og tvo komst hún að þeirri óhjákvæmilegu niðurstöðu að Brad þessi, væri Pitt, sá heimsþekkti kvikmyndaleikari. Þegar hún sagði samferðarmönnum frá því að kvöldi dags tóku þeir andköf af undrun yfir því að hún skyldi láta sér það happ úr hendi sleppa að fá af sér mynd með stjörnunni. Og dóttir hennar, þá er hún frétti af þessu, bað móður sína að segja ekki nokkrum manni frá þessu.
Mest lesið Hræðilegir dagar í Partylandi Lífið samstarf Hilmir Snær svarar gagnrýnendum Menning Hvað veistu um… pitsur? Lífið Sturluð skvísulæti í stórafmæli Tíska og hönnun Ómetanlegt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum Bíó og sjónvarp Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Lífið Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Lífið Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Lífið Úlfurinn át þá alla Gagnrýni Chris Brown á skilorði Lífið Fleiri fréttir Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Sjá meira