Ódýrustu miðarnir á Rammstein á sextán þúsund krónur Stefán Árni Pálsson skrifar 29. nóvember 2016 09:07 Búast má við miklu fjöri í Kórnum.
Miðasala á tónleika Rammstein, 20. maí, hefst á fimmtudaginn 1. desember en tónleikarnir fara fram í Kórnum í Kópavogi. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan hljómsveitin kom síðast hingað til lands og lék á tónleikum árið 2001. „Það er nokkuð skemmtileg staða sem veldur því að sveitin er að koma hingað og ræður þar mestu að meðlimir sveitarinnar elska Ísland. Tónleikar eins og þeir sem Rammstein halda eru af slíkri stærðargráðu að vanalegast kæmi landið okkar fagra ekki til greina sem áfangastaður en eftir að þeir komu hingað fyrst fyrir 15 árum þá hefur meðlimi sveitarinnar alltaf langað halda aftur tónleika hér. Núna er komið að því.“, segir Þorsteinn Stephensen, tónleikahaldari og framkvæmdastjóri Hr. Örlygs, en gert er ráð fyrir að það verði að minnsta kosti 15 gámar með hljóðkerfi, eldvörpum, ljósabúnaði og leikmunum og má því leiða að því líkum að þessir tónleikar verði á öðrum skala en það sem íslenskir tónleikagestir hafa áður kynnst. Rammstein hefur ekki gefið út plötu síðan í nóvember 2009, þegar hin umdeilda, Liebe Ist Fur Alle Da, kom út. Hinsvegar hefur sveitin verið gríðarlega afkastamikil við tónleikahald og ásamt því að halda stóra tónleika vítt og breitt um heim allan þá hefur sveitin gjarnan verið eitt af aðalnúmerunum á stærstu tónleikahátíðum hvers tímabils. „Rammstein eru að hefja nýtt tónleikaferðalag. Þeir ætla að dvelja á Íslandi í nokkra daga og taka nokkrar „production” æfingar í Kórnum áður en sjálfir tónleikarnir verða haldnir. Þetta verður án vafa stærsta tónleikauppfærsla íslandssögunnar og sennilega stærsta tónleikauppfærsla sem Rammstein hefur lagt í. Það að íslenskir tónleikagestir fái að verða fyrstir allra til að verða vitni af því sem Rammstein hefur uppá að bjóða á þessarri tónleikaferð er sérlega ánægjulegt.” segir Þorsteinn. Miðasala hefst kl. 10:00 á morgni fimmtudagsins 1. desember á miðasöluvefnum Tix.is. Engin forsala er á miðum til fyrirtækja eða hópa og sitja því allir við sama borð varðandi möguleika til að tryggja sér miða. Miðverð er eftirfarandi: A svæði: kr. 18.900 B svæði: kr. 15.900 Stúka: kr. 27.900 18 ára aldurstakmark er á tónleikana og verða gestir sem ekki hafa náð þeim aldri að vera í fylgd með fullorðnum.
Mest lesið Úlfurinn át þá alla Gagnrýni Hræðilegir dagar í Partylandi Lífið samstarf Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Hvað veistu um… pitsur? Lífið Gengst við dulnefninu en vill samt ekki kannast við það Menning Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Lífið Hilmir Snær svarar gagnrýnendum Menning Hætta við að hætta við að hætta við Tónlist Ómetanlegt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum Bíó og sjónvarp Sturluð skvísulæti í stórafmæli Tíska og hönnun Fleiri fréttir Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Sjá meira