Fá fentanýl sent með pósti Nadine Guðrún Yaghi skrifar 29. nóvember 2016 20:00
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur komist að því að verkjalyfið fentanýl, sem hefur verið misnotað hér á landi og valdið dauða, sé pantað á netinu af þeim sem misnota það og sent til Íslands. Samkvæmt upplýsingum frá embætti landlæknis hafa tvö dauðsföll orðið á árinu þar sem sterkar líkur eru á að þau megi rekja til eitrunar af völdum lyfsins. Í ágúst síðastliðnum rannsakaði lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hvort andlát ungs manns tengdist neyslu á lyfinu. Annar ungur maður, vinur þess sem lést, missti meðvitund sömu nótt og leikur einnig grunur á því að fentanýl hafi komið við sögu í því máli. Þegar rannsókn málanna stóð yfir fékk lögreglan vísbendingar um að lyfið gengi kaupum og sölum á netinu. Nú er þeirri rannsókn lokið og hefur lögreglan komist að því að þeir sem misnota lyfið panti það á netinu. Einar Guðberg Jónsson, lögreglufulltrúi hjá rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir að erfitt sé að finna lyfið þegar það kemur til landsins með póstinum en verið sé að þróa betri leiðir til að finna efnin í meira mæli. Hann segir að vitað sé að fentanýl sé boðið til sölu á netinu í Kína og Mexíkó en að ekki hafi fengist staðfest hvort lyfið sem kemur til Íslands komi þaðan. Talið er að efnið sem um ræðir heiti Fentanýl W18 en það var upphaflega þróað sem sterkt verkjalyf fyrir krabbameinssjúklinga en fór aldrei á markað sökum þess að það var talið of sterkt og ávanabindandi. Einar segir að lögreglan hafi miklar áhyggjur af notkun lyfsins hjá ungu fólki á Íslandi.
Mest lesið Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Innlent Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Innlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Innlent Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Innlent „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Innlent Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Innlent Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Innlent Meloni segir Trump skrökva upp á sig Erlent Fleiri fréttir Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Slysið austan við Vík var alvarlegt Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Aukin hætta á skriðum og grjóthruni Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Fjöldi bíður niðurstöðu og stór stund á Þingvöllum Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Sektaður fyrir að aka á göngugötu Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Höfuðvígi vændismansals, mótmælandi sem brotnaði niður og Þingvellir Björgunarsveitir sóttu göngumann við Háafoss Þingið komið í sumarfrí Samþykkja úrræði fyrir fólk sem sæta þarf öryggisráðstöfunum Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Allt eftirlit matvæla undir einni stofnun Boltinn sé hjá fjarskiptafélögunum Fresta opnun Sundhallar Reykjavíkur Áhöfnin hlúði að Hólmsteini á siglingunni til Hvalfjarðar Sjá meira